Annar skellur Tottenham í vikunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Harry Kane svekkir sig í leiknum í dag.
Harry Kane svekkir sig í leiknum í dag. vísir/getty
Vandræði Tottenham heldur áfram en liðið tapaði 3-0 fyrir Bighton á útivelli. Í vikunni töpuðu Tottenham 7-2 fyrir Bayern Munchen í Meistaradeildinni.

Eftir einungis þrjár mínútur komust heimamenn í Brighton yfir. Neal Maupay skoraði þá eftir hörmuleg mistök er hann missti boltann út í teiginn eftir fyrirgjöf Pascal Gross.

Lloris meiddist einnig í atvikinu og Paulo Gazzaniga þurfti að koma í markið fyrir Frakkann sem var borinn út af á börum.







Á 32. mínútu tvöfölduðu heimamenn forystuna er Aaron Connolly skoraði en hann skoraði með sínu öðru skoti eftir að Gazzaniga hafði varið vel frá honum í fyrra skoti Connolly.

Connolly skoraði annað mark sitt og þriðja mark Brighton á 65. mínútu er hann lék á varnarmenn Tottenham og kláraði færið vel. Lokatölur 3-0.







Mikill vandræðagangur á Tottenham sem er með ellefu stig eftir átta leiki en liðið er í 6. sæti deildarinnar.

Brighton er í 12. sætinu með níu stig eftir sigurinn öfluga í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira