City gaf eftir í toppbaráttunni við Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Traore fagnar öðru marka sinna í dag.
Traore fagnar öðru marka sinna í dag. vísir/getty
Liverpool heldur inn í landsleikjahlé ensku úrvalsdeildarinnar með átta stiga forystu eftir að Manchester City tapaði fyrir Wolves á heimavelli í dag, 2-0.

Adama Traore skoraði sigurmark Úlfanna á 80. mínútu. Raul Jimenez vann boltann á eigin vallarhelmingi og hélt í sókn þar sem hann gaf laglega stoðsendingu á Traore sem afgreiddi knöttinn snyrtilega í netið.

Heimamenn sóttu stíft á lokamínútum leiksins. Gabriel Jesus komst í færi, sem og Joao Cancelo, en þeim tókst ekki að nýta sér þau.

Til að bæta gráu á svart skoraði Traore öðru sinni með síðasta skoti leiksins. Rétt eins og í fyrri markinu vann Jimenez boltann þegar City var í sókn, kom boltanum á Traore sem brást ekki bogalistin.

Kevin De Bruyne lék ekki með City í dag og var hans saknað.

Þetta var aðeins annar deildarsigur Úlfanna á tímabilinu og er liðið komið upp í ellefta sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira