Rýma forsetahöllina vegna eldsneytismótmæla Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2019 10:59 Breytingar á eldsneytissköttum hafa vakið einna mesta reiði meðal landsmanna, en verðið hefur hækkað um allt að 120 prósent. AP
Búið er að rýma forsetahöllina í Ekvador og hafa ráðherrar flúið höfuðborgina Quito. Búist er við að þúsundir muni halda til höfuðborgarinnar á morgun til að mótmæla ríkisstjórn landsins og hækkun eldsneytisverðs. Mótmæli hafa staðið í landinu frá 3. október þegar ríkisstjórnin greindi frá umbótatillögum sem unnar hafa verið í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Er markmið aðgerðanna að draga úr fjárlagahalla og skuldum ríkissjóðs. Breytingar á eldsneytissköttum hafa vakið einna mesta reiði meðal landsmanna, en verðið hefur hækkað um allt að 120 prósent. Mætmælin eru þau mestu í landinu í tíu ár.APMótmælendur hafa kveikt í bíldekkjum og lokað vegum út úr höfuðborginni. Þá hafa verið unnin skemmdarverk á opinberum byggingum og hafa hluti mótmælenda kastað eldsprengjum og grjóti í átt að lögreglu. Að sögn BBC er á sjötta tug lögreglumanna haldið í gíslingu víðs vegar um landið. EFE greinir frá því að ráðherrar hafi margir flúið höfuðborgina og starfi nú í borginni Guayaquil, um 400 kílómetrum frá höfuðborginni. Það sem af er mótmælaaðgerðum hefur einn látið lífið og 77 særst. Flestir hinna særðu eru lögreglumenn. Alls hafa um fimm hundruð manns verið handteknir.
Ekvador Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira