Starfsmenn Arion bíða fregna af uppsögnum Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Stefán Ó. Jónsson skrifa 23. september 2019 10:00 Starfsmenn Arion banka söfnuðust saman í gluggum höfuðstöðvanna í Borgartúni þegar varaforseti Bandaríkjanna heimsótti Ísland á dögunum. Vísir/Vilhelm
Upplýsingafulltrúi Arion banka hafnar því að tilkynnt verði um skipulagsbreytingar og hópuppsagnir hjá bankanum í dag. Vefur Mannlífs greindi frá því í gærkvöld að slíkt stæði til og að um 80 manns myndu missa vinnu sína hjá bankanum. Það gerir um 10 prósent fækkun í starfsliðinu. Bankastjóri Arion til þriggja mánaða hefur þó reglulega lýst yfir hagræðingarvilja. Vísir setti sig í samband við Harald Guðna Eiðsson, upplýsingafulltrúa Arion banka, í gærkvöldi sem sagði að það væru engar hópuppsagnir fyrirhugaðar í dag. Haraldur vildi að öðru leyti ekki tjá sig um mögulegar uppsagnir í bankanum á næstunni. Nú stæði yfir stefnumótunarvinna, sem hann treysti sér ekki að fullyrða um hvenær lyki. Starfsmenn Arion sem fréttastofa hefur rætt við síðastliðinn sólarhring segja nokkurn titring innan bankans vegna fregnanna. Frétt Mannlífs hafi verið mikið reiðarslag og verið sé að „róa fólk,“ eins og einn starfsmaður Arion sagði í samtali við fréttastofu. Þetta sé erfiður tími fyrir starfsmenn. Engar upplýsingar hafi borist frá stjórnendum um uppsagnir, enn sem komið er. Það hafi þó örlað á stressi í starfsliðinu allt frá því að tölvupóstur barst frá bankastjóranum, Benedikt Gíslasyni, í upphafi júlímánaðar. Í póstinum sagði Benedikt, sem þá var nýtekinn til starfa, að það væri honum ekkert sérstakt kappsmál að Arion yrði stærsti banki á Íslandi. Mikilvægara væri að bankinn yrði framsækinn og skili hluthöfum arði. Í yfirlýsingum sínum eftir uppgjör annars ársfjórðungs í upphafi ágústmánaðar tók hann í sama streng. Bankinn myndi „móta áherslur í stefnu og starfsemi bankans til næstu ára svo bankinn sé sem best í stakk búinn til að mæta þeim miklu breytingum sem eru að eiga sér stað á fjármálaþjónustu,“ eins og hann komst að orði.Benedikt tók við starfi bankastjóra Arion banka fyrr á þessu ári.fréttablaðið/ernirÞar sagði hann að horft yrði til ýmissa þátta, t.a.m. að auka „skilvirkni í starfseminni, ekki síst í tengslum við aukið vægi stafrænna lausna. Markmiðið er að styrkja stöðu bankans enn frekar, auka arðsemi og tryggja að bankinn verði áfram í fararbroddi þegar kemur að nútímalegri fjármálaþjónustu.“ Í fjárfestakynningu vegna uppgjörsins var jafnframt tekið fram að lækkun rekstrarkostnaðar væri forgangsmál í átt að betri afkomu. Benedikt skerpti á þessari sýn sinni í viðtali við Markaðinn fyrr í þessum mánuði. Þar ræddi hann um árangur bankans af „stafrænu vegferð“ sinni og færri heimsóknir í útibú bankans. „Það gefur okkur tækifæri til að hagræða í rekstrinum enda þurfum við að sníða okkur stakk eftir vexti. Ef efnahagsreikningurinn dregst saman þá minnka umsvifin að sama skapi,“ sagði Benedikt.Framkvæmdastjórar horfið á braut Rekstur bankans hefur ekki þótt ásættanlegur að undanförnu, þannig var afkoma hans á öðrum ársfjórðungi þessa árs „ekki nógu góð,“ að sögn Benedikts. Á fyrstu sex mánuðum ársins var arðsemin aðeins rúmlega þrjú prósent en á síðustu misserum hefur talsvert útlánatap, einkum vegna United Silicon í Helguvík og gjaldþrots flugfélaganna WOW air og Primera air, sett þar strik í reikninginn. Tap Valitors bætti heldur ekki úr skák, en dótturfélagið tapaði tæplega 3 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Því hafa flestir búist við að einhverra hagræðinga væri að vænta hjá bankanum, sem nú þegar hafa sést í uppsögnum og brotthvarfi framkvæmdastjóra. Þannig fækkaði starfsmönnum bankans um 20 á öðrum ársfjórðungi þessa árs, auk þess sem Jónína S. Lárusdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, og Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, sögðu skilið við bankann í september. Alls hefur starfsmönnum Arion fækkað um 50 á síðastliðnu ári og er fjöldi stöðugilda hjá bankanum nú um 800.
Íslenskir bankar Vinnumarkaður Tengdar fréttir Fleiri kveðja Arion banka Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. 12. september 2019 11:22 Vandinn ekki krónan heldur kvaðir á banka Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion, segir fjármögnun fyrirtækja eiga eftir að færast á skuldabréfamarkaðinn. Bankarnir ekki samkeppnisfærir. Stjórnvalda að svara hvort skoða eigi sameiningar. 11. september 2019 09:00 Mest lesið Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Viðskipti innlent Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Viðskipti innlent G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Samstarf Fleiri fréttir Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Sjá meira
Fleiri kveðja Arion banka Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. 12. september 2019 11:22
Vandinn ekki krónan heldur kvaðir á banka Benedikt Gíslason, nýr bankastjóri Arion, segir fjármögnun fyrirtækja eiga eftir að færast á skuldabréfamarkaðinn. Bankarnir ekki samkeppnisfærir. Stjórnvalda að svara hvort skoða eigi sameiningar. 11. september 2019 09:00
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent