Innlent

Rauk á dyr til að mótmæla Þórhildi Sunnu

Samúel Karl Ólason skrifar
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fráleitt að málefni ríkislögreglustjóra hafi verið tekið fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í morgun. Málið sé á höndum dómsmálaráðherra og það sé hans að leysa úr því en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, var kölluð á fund nefndarinnar í morgun.

Brynjar vék af fundinum áður en Áslaug kom fyrir nefndina.

„Þetta hefur ekkert með ráðherrann að gera, þó mönnum þætti það mjög skemmtileg frétt,“ segir Brynjar.

Sjá einnig: Dómsmálaráðherra kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í fyrramálið

„Ég var að mótmæla því að formaður nefndarinnar [Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata] ákveður að halda fund af þessu tagi án þess að tala við kóng né prest og aðra nefndarmenn í þessu,“ segir Brynjar. „Fyrir utan það að ég ætla ekki að vera þátttakandi í einhverju pólitísku sjónarspili einstakra nefndarformanna eða alþingismanna.“

Brynjar segir málið eiga heima hjá dómsmálaráðherra.

„Það er hluti framkvæmdavaldsins að leysa þessi mál og að þingið sé að skipta sér af því á þessu stigi málsins er algjörlega fráleitt að mínu mati,“ segir Brynjar. „Þess vegna lít ég á þetta sem pólitískt sjónarspil, sem ég ætla ekki að taka þátt í.“


Tengdar fréttir

Haraldur fer ekki fet

Haraldur Johannessen mun ekki stíga til hliðar úr embætti ríkislögreglustjóra þrátt fyrir vantraust átta af níu lögreglustjóra á landinu.

Skoðar sameiningu Ríkislögreglustjóra og LRH og gefur sér nokkrar vikur til að finna lausn

Meðal þess sem er til skoðunar innan dómsmálaráðuneytisins til þess að leysa úr þeim deilum sem geysa á milli ríkislögreglustjóra og lögreglunnar í landinu er að hvort sameina ætti embætti Ríkislögreglustjóra og embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Dómsmálaráðherra gefur sér nokkrar vikur til að finna lausn á málinu.

Dómsmálaráðherra verði að grípa til aðgerða

Lögreglustjórar og Landssamband lögreglumanna lýsa yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislögreglustjóra. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir dómsmálaráðherra verða að bregðast við.

Hissa að Haraldur steig ekki sjálfur til hliðar

Snorri Magnússon, formaður Landsambands lögreglumanna, er hissa á tíðindum dagsins. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að ráðherra verði að útskýra betur hvernig hvernig lögreglan geti verið starfhæf á meðan nefnd á hennar vegum vinni að einhvers konar skipulagsbreytingum.

Tvær kvartanir vegna eineltis af hálfu ríkislögreglustjórans

Tvö mál er varða einelti ríkislögreglustjóra í garð sérsveitarmanna hafa borist dómsmálaráðuneyti. Fréttablaðið hefur bréf sem dómsmálaráðherra sendi lögreglustjórum undir höndum þar sem hún segir rétt að lögreglan verðirekin sem ein heild. Ríkislögreglustjóra boðin starfslok í sumar, sem ekki varð af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×