Meistararnir sóttu þrjú stig á Goodison

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mahrez skoraði glæsimark í dag
Mahrez skoraði glæsimark í dag vísir/getty
Englandsmeistarar Manchester City sóttu þrjú stig á Goodison Park gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Everton.

Gabriel Jesus kom gestunum frá Manchester yfir með skalla af stuttu færi í fyrri hálfleik en heimamenn náðu að jafna áður en blásið var til hálfleiks með marki frá Dominic Calvert-Lewin.

Riyad Mahrez kom City aftur yfir með frábæru marki beint úr aukaspyrnu og Raheem Sterling innsiglaði sigurinn seint í leiknum. Áður höfðu bæði Calvert-Lewin og Yerry Mina verið nálægt því að jafna aftur fyrir Everton.

Leiknum lauk með 3-1 sigri sem var nauðsynlegur fyrir meistarana til þess að halda pressunni á Liverpool, en Manchester City er fimm stigum á eftir Liverpool í deildinni.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Everton.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira