Innlent

Kópa­vogs­bær birti í síðustu viku fundar­gerð inn í fram­tíðina

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Almannatengill segir um mannleg mistök að ræða.
Almannatengill segir um mannleg mistök að ræða. Fréttablaðið/GVA
Föstudaginn 6. september var fundargerð um bæjarstjórnarfund Kópavogs þann 10. september birt á vefsíðu sveitarfélagsins.

Kom þar meðal annars fram hverjir hefðu mætt á fundinn, að allir ellefu fulltrúarnir hefðu samþykkt ákveðnar tillögur, hvenær fundinum var slitið og svo framvegis.

„Ég hef aldrei séð svona lagað gert áður. Þetta hljóta að vera mistök en það er eins og sé búið að skrifa fundargerðina og ákveða hvernig fólk greiðir atkvæði. Það skiptir greinilega engu máli að halda fundinn,“ segir Theódóra Þorsteinsdóttir, oddviti sameiginlegs lista Bjartrar framtíðar og Viðreisnar. En hún situr í minnihluta bæjarstjórnar. „Ég gerði verulegar athugasemdir við þetta og fékk þau svör frá bæjarstjóra að þetta væru mistök,“ segir hún.

Theódóra Þorsteinsdóttir oddviti BF/Viðreisnar
Fundargerðin hefur nú verið fjarlægð af vefsíðu Kópavogs. En á umræddum fundi á að taka fyrir fjármál Sorpu, sem hafa verið mikið til umræðu á höfuðborgarsvæðinu.

„Við í BF/Viðreisn erum mjög gagnrýnin á þá leyndarhyggju sem hefur ríkt á meintum mistökum í áætlunum fyrir gas- og jarðgerðarstöðina,“ segir Theódóra. „Almennt séð er umræðan mjög lítil í bæjarstjórn en ég vona að meirihlutinn taki við sér og ræði málið ítarlega, sér í lagi þar sem Birkir Jón Jónsson er bæði formaður bæjarráðs og formaður stjórnar Sorpu.“

Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill Kópavogsbæjar, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða.

„Forskrifuð fundargerð fór á netið fyrir mistök. Þessi forskrift auðveldar okkur vinnuna því bæjarstjórn hefur það hlutverk að staðfesta afgreiðslu ráða, sem er gert í yfir 90 prósent tilvika.“ Sigríður segir fundargerðunum breytt ef eitthvað annað gerist á fundinum, svo sem ekki allir kjósi með tillögu eða að fulltrúar komi með bókun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×