Viðskipti innlent

Engar flug­ferðir fyrir­hugaðar enn sem komið er

Gunnar Reynir Valþórsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Michelle Ballarin á blaðamannafundi á Hótel Sögu fyrr í mánuðinum.
Michelle Ballarin á blaðamannafundi á Hótel Sögu fyrr í mánuðinum. Skjáskot/Vísir
Engar flugferðir á vegum hins endurreista WOW air eru fyrirhugaðar frá Dulles-flugvellinum í Washington DC, enn sem komið er í það minnsta.

Þetta kemur fram hjá talskonu flugvallanna í Washington en stórblaðið Washington Post fjallar um endurreisnaráform Michelle Ballarin.

Talskonan segir í svari til blaðsins að fundað hafi verið með Ballarin og samstarfsfólki hennar í síðasta mánuði en að eins og staðan sé nú séu engar flugferðir á vegum félagsins fyrirhugaðar frá Dulles.

Þá er rætt við flugmálasérfræðinginn Robert Mann sem segir að enn liggi of lítið af upplýsingum fyrir hvað varði endurreisn WOW til að hægt sé að meta stöðuna af einhverri alvöru.

Ballarin sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 þann 6. september, sama dag og hún boðaði til blaðamannafundar, að stefnt yrði á að hefja miðasölu í vikunni á eftir, þ.e. í síðustu viku. Heimasíðan yrði vonandi komin í loftið og orðin nothæfa svo fólk gæti byrjað að bóka flug. Af hvorugu hefur orðið enn sem komið er.

Páll Ágúst Pálsson lögmaður sem hefur verið tengiliður Ballarin við fjölmiðla og henni innan handar um hin ýmsu mál sagði í samtali við Vísi þann 9. september að unnið væri hörðum höndum að því að koma heimasíðu félagsins í loftið. Hann vildi þó ekki svara spurningum sem sneru að rekstrarlegum atriðum eða því hvort búið væri að ráða starfsfólk hér á landi.

Meðal þess sem Ballarin keypti úr þrotabúi WOW air voru fjólubláu búningarnir sem Gunnar Hilmarsson hannaði á sínum tíma. Gunnar Hilmarsson, sem hannaði búningana á sínum tíma, staðfesti í samtali við Vísi að Páll Ágúst hefði rætt við sig. Ekkert væri þó fast í hendi varðandi framhaldið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×