Viðskipti innlent

Björn Hlynur kaupir Ölver ásamt æskuvinum sínum

Birgir Olgeirsson skrifar
Björn Hlynur, Ingólfur og Gylfi Jens við barborðið á Ölveri
Björn Hlynur, Ingólfur og Gylfi Jens við barborðið á Ölveri Instagram
Æskuvinirnir Björn Hlynur Haraldsson, Ingólfur Pétursson og Gylfi Jens Gylfason hafa fest kaup á barnum Ölveri í Glæsibæ. Félagarnir segja að engin kúvending verði á rekstri barsins, þeir munu halda áfram með þann góða rekstur einkennt þennan alþýðlega bar og halda tryggð við fastakúnna sem eiga Ölver sem annað heimili.

„Þetta er búið að vera að gerjast frá því í vor,“ segir Björn Hlynur í samtali við Vísi um kaupin. Allir eru þeir úr hverfinu í grennd við Glæsibæ og vildu gera eitthvað skemmtilegt saman. „Við gripum því tækifærið og kýldum á þetta. Þessi staður er búinn að vera þarna í 35 ár, frá 1984, og því með langa sögu. Ölver hefur verið þekktari sem sportbar í seinni tíð en var öðruvísi áður,“ segir Björn Hlynur.

Miklar annir í ágúst

Hann segir mikið standa til í ágúst á barnum þar sem von er á fjölda fólks á Ölver. Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran verður með tónleika á Laugardalsvelli um helgina og búast þeir á Ölveri við að margir munu leggja leið sín á barinn í tengslum við þá tónleika.

Enski boltinn er einnig að fara af stað sem þýðir að fjölmargir munu leggja leið sína barinn til að horfa á leikina og þá eru þrír leikir íslenska karlalandsliðsins á dagskrá þar sem meðlimir Tólfunnar, stuðningssveitar Íslands, munu gera sig klára fyrir leikinn á Ölveri.



 
 
 
View this post on Instagram
Verið undirbúin. Dettum “röngu” megin við barinn 1. ágúst sem nýjir eigendur..

A post shared by Ingólfur Pétursson (@gollip) on Jul 24, 2019 at 11:07am PDT

Björn Hlynur segir að ekki þurfi að breyta miklu á Ölveri. Staðurinn fór í gegnum breytingar fyrir tveimur árum, þar sem bætt var við nýjum tækjum og húsgögnum ásamt öðru, og því ekki miklar framkvæmdir sem félagarnir þurfa að ráðast í.

Fastakúnnarnir þurfa ekki að hafa áhyggjur

Þeir ætla sér þó að skoða matseðilinn enda miklir áhugamenn um barmat. Það mun þó ekki gerast nema að höfðu samráði við fastakúnna.

Björn Hlynur segist þó sjá fyrir sér að Ölver geti orðið í náinni framtíð heimili uppistands í Reykjavík. „Við erum með fullkominn sal undir það og fyrir aðra viðburði líka. Íþróttaviðburðirnir eru þó margir, nánast á hverju einasta kvöldi yfir veturinn þegar mest lætur, að það þarf að finna því tíma í þessum smugum sem lítið er um að vera.“

Sjá einnig: Björn Hlynur fræddi Rachel McAdams um Birgittu Haukdal

Ölver hefur í gegnum tíðina verið heimili stuðningsmanna og verður það áfram að sögn Björns Hlyns.Vísir/Anton Brink
Það er greinilegt að fastakúnnarnir skipta þá félaga miklu máli enda bendi Björn Hlynur á að margir hafi gert Ölver að sínum. „Og við erum ekki að fara að labba inn á heimili einhvers og breyta öllu. Tólfan á heima hérna og þetta er heimili stuðningsmanna. Þegar við erum að skoða barmatseðilinn þá ætlum við að tala við fastakúnna og hvernig þeir sjá þetta fyrir sér. Þetta verður nákvæmlega eins og fólk vill. Við ætlum ekki að vera með neina stæla og gera eitthvað sem enginn annar „fílar. Þetta er og verður alþýðustaðurinn í hverfinu.“

Stendur sína plikt þegar hann er heima

Ingólfur og Jens búa í hverfinu og býr Björn Hlynur ekki langt frá. Þeir ólust upp í hverfinu og eru miklir Þróttarar en Björn Hlynur tekur fram að Ölveri verði þar með ekki sjálfkrafa einhver Þróttarbara heldur staður fyrir alla.

Björn Hlynur er hins vegar mikið á ferð á flugi vinnu sinnar vegna sem leikari. Hann gerði félögum sínum grein fyrir því áður en þeir lögðu af stað saman með þetta verkefni. Sama morgun og þeir tóku við staðnum, í síðustu viku, flaug hann út til London til að leika í Eurovision-mynd Will Ferrell og er nú nýkominn heim.

„Og reyni þá að standa mína plikt þegar ég er heima,“ segir Björn Hlynur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×