„Þetta er búið að vera að gerjast frá því í vor,“ segir Björn Hlynur í samtali við Vísi um kaupin. Allir eru þeir úr hverfinu í grennd við Glæsibæ og vildu gera eitthvað skemmtilegt saman. „Við gripum því tækifærið og kýldum á þetta. Þessi staður er búinn að vera þarna í 35 ár, frá 1984, og því með langa sögu. Ölver hefur verið þekktari sem sportbar í seinni tíð en var öðruvísi áður,“ segir Björn Hlynur.
Miklar annir í ágúst
Hann segir mikið standa til í ágúst á barnum þar sem von er á fjölda fólks á Ölver. Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran verður með tónleika á Laugardalsvelli um helgina og búast þeir á Ölveri við að margir munu leggja leið sín á barinn í tengslum við þá tónleika.Enski boltinn er einnig að fara af stað sem þýðir að fjölmargir munu leggja leið sína barinn til að horfa á leikina og þá eru þrír leikir íslenska karlalandsliðsins á dagskrá þar sem meðlimir Tólfunnar, stuðningssveitar Íslands, munu gera sig klára fyrir leikinn á Ölveri.
Verið undirbúin. Dettum “röngu” megin við barinn 1. ágúst sem nýjir eigendur..View this post on Instagram
A post shared by Ingólfur Pétursson (@gollip) on Jul 24, 2019 at 11:07am PDT
Fastakúnnarnir þurfa ekki að hafa áhyggjur
Þeir ætla sér þó að skoða matseðilinn enda miklir áhugamenn um barmat. Það mun þó ekki gerast nema að höfðu samráði við fastakúnna.Björn Hlynur segist þó sjá fyrir sér að Ölver geti orðið í náinni framtíð heimili uppistands í Reykjavík. „Við erum með fullkominn sal undir það og fyrir aðra viðburði líka. Íþróttaviðburðirnir eru þó margir, nánast á hverju einasta kvöldi yfir veturinn þegar mest lætur, að það þarf að finna því tíma í þessum smugum sem lítið er um að vera.“
Sjá einnig: Björn Hlynur fræddi Rachel McAdams um Birgittu Haukdal

Stendur sína plikt þegar hann er heima
Ingólfur og Jens búa í hverfinu og býr Björn Hlynur ekki langt frá. Þeir ólust upp í hverfinu og eru miklir Þróttarar en Björn Hlynur tekur fram að Ölveri verði þar með ekki sjálfkrafa einhver Þróttarbara heldur staður fyrir alla.Björn Hlynur er hins vegar mikið á ferð á flugi vinnu sinnar vegna sem leikari. Hann gerði félögum sínum grein fyrir því áður en þeir lögðu af stað saman með þetta verkefni. Sama morgun og þeir tóku við staðnum, í síðustu viku, flaug hann út til London til að leika í Eurovision-mynd Will Ferrell og er nú nýkominn heim.
„Og reyni þá að standa mína plikt þegar ég er heima,“ segir Björn Hlynur.