Viðskipti innlent

Stjórnvöld bregðist of seint við skorti á lambahryggjum

Sighvatur Jónsson skrifar
Reglur um 30 daga frystingu kjöts gera innflytjendum næsta ómögulegt að flytja inn erlenda lambahryggi á eins mánaðar tímabili, að sögn forstjóra Innnes.
Reglur um 30 daga frystingu kjöts gera innflytjendum næsta ómögulegt að flytja inn erlenda lambahryggi á eins mánaðar tímabili, að sögn forstjóra Innnes.
Formaður Félags atvinnurekenda segir stjórnvöld bregðast of seint við skorti á lambahryggjum með því að leyfa innflutning á erlendu kjöti.

Ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara leggur til að úthlutað verði opnum tollkvótum á lambahryggjum til að bregðast við skorti á hryggjum í verslunum hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er málið ekki komið á borð ráðherra en nefndin hefur sent drög að tillögum til hagsmunaaðila.

Magnús Óli Ólafsson, formaður Félags atvinnurekenda, segir skortinn tilkominn vegna þess að innlendar afurðarstöðvar hafi selt lambahryggi til útlanda á niðursettu verði í stað þess að bjóða íslenskum neytendum vöruna. Hann segir stjórnvöld bregðast seint við.

„Þegar til kemur þá er tímabilið sem tollarnir eru felldir niður einungis fjórar vikur, frá 29. júlí til 30. ágúst. Þar sem það er 30 daga frystiskylda á innfluttu kjöti þá er mjög erfitt að finna birgja sem á frosið lambakjöt til. Þar sem innflutningsverslunin hefur í litlum sem engum mæli verið að flytja inn lambakjöt er mjög snúið að verða við þessu. Mér finnst mjög ámælisvert að þessi staða sé komin upp og íslenskir neytendur skuli vera hafðir í þriðja og fjórða sæti.“

Magnús Óli er líka forstjóri heildverslunarinnar Innnes. Hann segir til skoðunar að flytja inn erlent kjöt, þótt tímaramminn sé stuttur. Erfitt geti verið að ná sambandi við erlenda birgja vegna sumarleyfa.

Magnús Óli segir að horft sé til innflutnings lambakjöts frá Nýja-Sjálandi, Spáni og Frakklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×