Handbolti

Elvar og Íris Björk valin best á lokahófi HSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elvar og Íris Björk, bestu leikmenn Olís-deildanna í handbolta tímabilið 2018-19.
Elvar og Íris Björk, bestu leikmenn Olís-deildanna í handbolta tímabilið 2018-19. vísir/vilhelm/bára
Elvar Örn Jónsson og Íris Björk Símonardóttir voru valin bestu leikmenn Olís-deildanna í handbolta á lokahófi HSÍ í dag. Þau voru lykilmenn í Íslandsmeistaraliðum Selfoss og Vals.

Þetta er annað árið í röð sem Elvar er valinn besti leikmaður deildarinnar.

Samherji Elvars, Haukur Þrastarson, var valinn efnilegasti leikmaður Olís-deildar karla annað árið í röð. Lena Margrét Valdimarsdóttir úr Fram var valin efnilegust í Olís-deild kvenna.

Bestu þjálfararnir voru Gunnar Magnússon, þjálfari deildarmeistara Hauka, og Ágúst Jóhannsson, þjálfari Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals.

Valsmarkverðirnir Íris Björk og Daníel Freyr Andrésson voru valin bestu markverðir Olís-deildanna. Bestu varnarmennirnir voru Daníel Þór Ingason (Haukum) og Steinunn Björnsdóttir (Fram) og bestu sóknarmennirnir voru Magnús Óli Magnússon og Lovísa Thompson úr Val.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson voru valdir besta dómaraparið. Þetta er í fimmta sinn sem þeir fá þessa viðurkenningu saman. Anton var einnig sjö sinnum valinn besti dómarinn þegar hann dæmdi með Hlyni Leifssyni.

Breki Dagsson úr Fjölni og Þóra María Sigurjónsdóttir úr Aftureldingu voru valin bestu leikmenn Grill 66 deildanna.

Lista yfir verðlaunahafa á lokahófi HSÍ má sjá hér fyrir neðan.

Háttvísiverðlaun HDSÍ kvenna 2019

Díana Dögg Magnúsdóttir - Valur

Háttvísiverðlaun HDSÍ karla 2019

Arnór Freyr Stefánsson - Afturelding

Unglingabikar HSÍ 2019

FRAM

Markahæsti leikmaður Grill 66 deildar kvenna 2019

Ólöf Ásta Arnþórsdóttir 185 mörk - Fjölnir

Markahæsti leikmaður Grill 66 deildar karla 2019

Breki Dagsson 126 mörk – Fjölnir

Kristófer Andri Daðason 126 mörk – Víkingur

Markahæsti leikmaður Olís deildar kvenna 2019

Martha Hermannsdóttir 138 mörk – KA/Þór

Markahæsti leikmaður Olís deildar karla 2019

Ásbjörn Friðriksson 151 mark - FH

Besti varnarmaður Grill 66 deildar kvenna 2019

Þóra María Sigurjónsdóttir - Afturelding

Besti varnarmaður Grill 66 deildar karla 2019

Arnar Máni Rúnarsson - Fjölnir

Besti varnarmaður Olís deildar kvenna 2019

Steinunn Björnsdóttir - Fram

Besti varnarmaður Olís deildar karla 2019

Daníel Þór Ingason - Haukar

Besti sóknarmaður Grill 66 deildar kvenna 2019

Lena Margrét Valdimarsdóttir – Fram U

Besti sóknarmaður Grill 66 deildar karla 2019

Breki Dagsson - Fjölnir

Besti sóknarmaður Olís deildar kvenna 2019

Lovísa Thompson - Valur

Besti sóknarmaður Olís deildar karla 2019

Magnús Óli Magnússon - Valur

Besti markmaður Grill 66 deildar kvenna 2019

Sara Sif Helgadóttir – Fram U

Besti markmaður Grill 66 deildar karla 2019

Andri Sigmarsson Scheving – Haukar U

Besti markmaður Olís deildar kvenna 2019

Íris Björk Símonardóttir - Valur

Besti markmaður Olís deildar karla 2019

Daníel Freyr Andrésson - Valur

Besta dómaraparið 2019

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson

Sigríðarbikarinn 2019

Íris Björk Símonardóttir - Valur

Valdimarsbikarinn 2019

Elvar Örn Jónsson – Selfoss

Besti þjálfari í Grill 66 deild kvenna 2019

Haraldur Þorvarðarson - Afturelding

Besti þjálfari í Grill 66 deild karla 2019

Kári Garðarsson - Fjölnir

Besti þjálfari Olís deildar kvenna 2019

Ágúst Þór Jóhannsson - Valur

Besti þjálfari Olís deildar karla 2019

Gunnar Magnússon - Haukar

Efnilegasti leikmaður Grill 66 deildar kvenna 2019

Elín Rósa Magnúsdóttir - Fylkir

Efnilegasti leikmaður Grill 66 deildar karla 2019

Blær Hinriksson - HK

Efnilegasti leikmaður Olís deildar kvenna 2019

Lena Margrét Valdimarsdóttir – Fram

Efnilegasti leikmaður Olís deildar karla 2019

Haukur Þrastarson - Selfoss

Leikmaður ársins í Grill 66 deild kvenna 2019

Þóra María Sigurjónsdóttir - Afturelding

Leikmaður ársins í Grill 66 deild karla 2019

Breki Dagsson - Fjölnir

Besti leikmaður Olís deildar kvenna 2019

Íris Björk Símonardóttir - Valur

Besti leikmaður Olís deildar karla 2019

Elvar Örn Jónsson - Selfoss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×