Viðskipti erlent

Endur­hanna Face­book-appið og leggja meiri á­herslu á hópa og við­burði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mark Zuckerberg sést hér á kynningunni í dag ræða um þær breytingar sem gera á á Facebook-appinu.
Mark Zuckerberg sést hér á kynningunni í dag ræða um þær breytingar sem gera á á Facebook-appinu. vísir/Getty
Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi samfélagsmiðilsins Facebook, kynnti í dag ýmsar breytingar sem gerðar verða á miðlinum á næstunni.

Ein stærsta breytingin sem ráðist verður í er á Facebook-appinu en það verður endurhannað með það að markmiði að leggja meiri áherslu á hópa og viðburði.

 Það eru þeir tveir þættir sem notendur Facebook nota mest í appinu að því er fram kom í kynningunni í dag.

„Það eru tugir milljóna virkra hópa á Facebook. Þegar fólk finnur rétta hópinn þá verður hópurinn gjarnan það sem skiptir það mestu máli þegar kemur að því að nota Facebook. Í dag eru meira en 400 milljón notendur á Facebook í hóp sem skiptir þá máli.

Við erum með þetta í huga þegar við kynnum nýja hönnun sem er einfaldari og setur hópana í öndvegi. Við kynnum einnig ný tól sem gera þér auðveldara að finna og taka þátt í hópum með fólki sem deilir þínum áhugamálum,“ sagði í færslu Facebook um breytingarnar á appinu en fjallað er um málið á The Verge.

Endurhönnunin mun strax á næstu vikum byrja að birtast í snjallsímum notenda um allan heim. Þá er einnig unnið að því að endurhanna útlit Facebook eins og það birtist í tölvum notenda og munu þær breytingar sjást á næstu mánuðum.

Stærsta breytingin í appinu er sú að sérstakur hnappur verður fyrir hópa efst í aðalvalmyndinni. Þegar smellt er á hnappinn mun notandinn fá upplýsingar sem sérstaklega eru miðaðar að honum varðandi það hvað er að gerast í hópunum sem hann er í. Þá munu birtast tillögur að nýjum hópum til að taka þátt í.

Þegar kemur að viðburðum, sem margir hverjir eru auglýstir á Facebook, þá verður megináherslan á það að finna viðburði í næsta nágrenni við notandann. Nýr hnappur fyrir viðburði verður til dæmis með nákvæmara korti svo auðveldara verður að finna viðburði sem eru í grennd við hvorn annan.


Tengdar fréttir

Facebook leggur þrjá miljarða til hliðar í sektarsjóð

Bandaríska tæknifyrirtækið Facebook hefur lagt til hliðar þrjá milljarða dollara, um 360 milljarða íslenska króna, til þess að greiða fyrir mögulegar sektir vegna rannsóknar á meintum persónuverndarbrotum fyrirtækisins.

Zuckerberg óttast alræðisríki

Forstjóri Facebook óttast kröfur um að persónuleg gögn verði vistuð í gagnaverum í hverju landi fyrir sig. Vill ekki að alræðisríki geti stolið upplýsingum um þegna sína. Ætlar að hundsa allar slíkar kröfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×