Viðskipti erlent

Sætasali Icelandair vill farþega á fætur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Framtíð farþegaflugs?
Framtíð farþegaflugs? Skjáskot
Ítalski flugsætaframleiðandinn Aviointeriors, sem meðal annars selur Icelandair flugsæti, hefur ekki gefið upp vonina um að einn daginn verði hægt að standa í háloftunum. Á vörusýningunni Aircraft Interiors Expo 2019 sem fram fór í Hamborg í Þýskalandi á dögunum kynnti fyrirtækið nýjustu útgáfu sína af Skyrider, sem segja má að sé eins konar stæði.

Aviointeriors hefur áður gert tvær útgáfur af stæðinu, en sökum ýmissa hönnunargalla hafa þau ekki hentað til fjöldaframleiðslu. Fyrirtækið telur gallana hins vegar vera úr vegi og að þau henti nú til farþegaflugs. Fyrirtækið segir að áhuginn sé töluverður, enda taki stæðin umtalsvert minna pláss í farþegarýminu en hefðbundin sæti, eða aðeins 58 sentímetra.

Eðli máls samkvæmt sé því hægt að koma fyrir fleiri stæðum en sætum og ætti það, vonandi, að geta orðið til þess að lækka miðaverð.

Ekki fullkomin

Talsmenn Aviointeriors segja það þó ekki vera markmið flugfélagsins að fylla flugvélar með stæðunum þannig að fljúga megi fleiri hundruð, ef ekki þúsund, manns í einu. Stæðin bjóði hins vegar upp á aukna fjölbreytni og gætu þannig komið til viðbótar hefðbundnum lúxus- og almennum farrýmum.

Talsmaðurinn viðurkennir að sama skapi að stæðin henti ekki fólki af öllum stærðum, auk þess sem séu óhentug á lengri leiðum. Gagnrýnandi sem prófaði Skyrider á sýningunni í Hamborg sagði að þetta væri ekki ósvipað reiðhjólahnakki. Fyrst um sinn hafi upplifunin verið bærileg en ekki hafi liðið nema örfáar mínútur áður en hann gat ekki hugsað sér að standa lengur.

Meðal viðskiptavina Aviointeriors eru fyrrnefnt Icelandair, Asiana Airlines, Air India Express, Cathay Pacific og Rossiya Airlines, ef marka má heimasíðu fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×