Viðskipti erlent

Ný AirPods óvænt kynnt

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
AirPods 2.
AirPods 2. Apple
Apple kynnti í gær næstu útgáfu hinna feikivinsælu þráðlausu heyrnartóla sinna, AirPods. Fyrri útgáfa var vinsæl jólagjöf hér á landi um síðustu jól og var víða uppseld í janúar.

Önnur kynslóð AirPods lítur svo gott sem eins út og fyrri kynslóð. Uppfærslan er því undir húddinu, ef svo má að orði komast.

Fyrst og fremst ber að nefna að nýja hleðsluhulstrið utan um heyrnartólin er hægt að hlaða þráðlaust. Það er útbúið hinni algengu Qi-hleðslutækni sem þýðir að það er hægt að hlaða hulstrið með næstum hvaða þráðlausa hleðslutæki sem er. Þá hefur lítilli LED-peru verið komið fyrir utan á hulstrinu til þess að hægt sé að fylgjast með hleðslustöðunni.

Apple hefur einnig uppfært örflögu heyrnartólanna. Hin nýja H1-örflaga hefur það fram yfir W1-örflögu fyrri kynslóðar að hægt er að tala um klukkustund lengur í síma áður en heyrnartólin verða rafmagnslaus, þau eiga að tengjast tvöfalt hraðar þegar skipt er um tæki og hægt verður að biðja stafræna aðstoðarmanninn Siri um aðstoð án þess að ýtt sé á heyrnartólin.

Þeir AirPods-eigendur sem eru ekki tilbúnir til þess að fjárfesta strax í nýjum heyrnartólum en ágirnast samt sem áður þráðlausa hleðslu þurfa ekki að fara í fýlu af því að nýja hulstrið virkar með gömlu tólunum og verður einnig selt stakt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×