Yfir 100 ungmenni í alþjóðlegum rokkbúðum í Landbúnaðarháskóla Íslands Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. mars 2019 07:00 Auður Viðarsdóttir er ein af þeim sem kemur að skipulagningu búðanna í sumar fyrir hönd Stelpur rokka! þórdís reynisdóttir
Yfir 100 ungmenni, flest á aldrinum 18 til 22 ára, munu í sumar taka þátt í alþjóðlegum rokkbúðum sem fram fara í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Íslensku sjálfboðaliðasamtökin Stelpur rokka! standa að búðunum ásamt ellefu öðrum rokkbúðasamtökum sem starfa víðs vegar í Evrópu en markmið búðanna er að efla evrópskt samstarf rokkbúða. „Við fundum hvert annað í gegnum alþjóðasamtök rokkbúða sem heita Girls Rock Camp Alliance sem flest þessi samtök eru hluti af. Okkur langaði að efla evrópska samstarfið, meðal annars vegna þess að það er erfitt fyrir margar búðir í Evrópu að ferðast til Bandaríkjanna þar sem er rokkbúðaráðstefna á hverju ári. Þannig að okkur langaði að byggja upp evrópskt samstarf sem hefur reyndar verið í uppbyggingu síðan 2012, 13,“ segir Auður Viðarsdóttir, verkefnastýra alþjóðlegu rokkbúðanna hjá Stelpur rokka!Vikulangar búðir sem fara fram í ágúst Fyrstu alþjóðlegu rokkbúðirnar voru haldnar í Berlín síðasta sumar og kom Auður einnig að skipulagningu þeirra. Hún ásamt samstarfskonu sinni sem starfar rokkbúðasamtök í Berlín sóttu um styrk í gegnum Erasmus-ungmennaskiptaverkefni og fengu. Þannig var hægt að halda rokkbúðirnar í Berlín og gekk það svo vel að ákveðið var að sækja aftur um styrk og þá fyrir rokkbúðum hér á landi. Styrkurinn fékkst aftur og er undirbúningur búðanna á Hvanneyri nú í fullum gangi. Tilgangurinn er að byggja upp evrópska samstarfsnetið og markmiðið er að ungmennin sem taki þátt í búðunum leiði starfið. Búðirnar fara fram þann 5.-12. ágúst. Um klassískar vikulangar rokkbúðir er að ræða eins og Stelpur rokka! hafa haldið hér á landi undanfarin sjö ár sem enda á lokatónleikum þátttakenda. Helsti munurinn er sá að þátttakendur gista á staðnum þar sem búðirnar fara fram.Hópurinn sem tók þátt í búðunum í Berlín síðasta sumar.Malgo GrygierczykFyrir ungmenni sem hafa færri tækifæri Hver samtök senda fjóra til sjö þátttakendur í búðirnar og tvo til fjóra leiðbeinendur. Búðirnar eru fyrir stelpur, transungmenni, kynsegin ungmenni og intersex ungmenni að sögn Auðar og er aldursglugginn 16 til 30 ára. Flestir þátttakendur verða þó að öllum líkindum á aldrinum 18 til 22 ára. „Þessar búðir eru hannaðar fyrir ungmenni sem hafa færri tækifæri eins og Erasmus-prógrammið orðar það. Þannig að fólk sem myndi að öðrum kosti ekki hafa tækifæri á að taka þátt í svona alþjóðlegum verkefnum vegna fjárhagsaðstæðna, fötlunar eða annars. Langflest samtökin sem taka þátt eru eins og Stelpur rokka!, það er leggja mikið upp úr því að ná til krakka sem þurfa á svona að halda og þau sjá þá um að ná til ungmenna í sínu samfélagi sem passa inn í þetta markmið,“ segir Auður.Frá Landbúnaðarháskólanum.fréttablaðið/pjeturLandbúnaðarháskólinn nánast fullkominn staður fyrir búðirnar Þátttakendur í búðunum á Hvanneyri í sumar munu geta valið um þrjár línur, eins og Auður orðar það. Ein línan snýr að tónlistinni sjálfri þar sem þátttakendur mynda hljómsveitir, læra á hljóðfæri, semja lög og koma fram á lokatónleikum. Önnur línan snýst um miðlun þar sem þátttakendur búa til efni til að miðla því sem fer fram í búðunum, taka til dæmis myndir, viðtöl, myndbönd, gera hlaðvörp og jafnvel stuttmyndir. Þriðja línan er svo nokkurs konar verkefnastjórnun. Auður segir þá línu fyrir ungt fólk sem hafi áhuga á að læra meira hvernig hægt er að stofna alþjóðlega hreyfingu, framkvæma hugmyndir að verkefnum í heimalandinu og skapa lýðræðislegar hreyfingar. Þá sjái sá hópur einnig um að skipuleggja lokatónleikanna. Auður segir að það hafi verið smá flókið að finna rétta staðinn fyrir búðirnar hér á landi þar sem aðgengi fyrir fatlaða þurfi að vera til staðar. Þá mátti staðurinn ekki vera of langt frá Reykjavík. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri hafi svo reynst nánast fullkominn kostur. „Við erum einmitt að klára samningagerði við Landbúnaðarháskólann. Það er mjög skemmtilegt og við erum mjög ánægðar með það. […] Þau eru með alls konar gistirými og allt á sama svæðinu og svo þetta stóra hús sem er með alveg nógu mörgum rýmum. Svo mætum við með allar græjur auðvitað, við erum vanar því. Tónleikarnir verða svo í gamalli hlöðu sem verður breytt í tónleikastað í samráði við staðarhaldara,“ segir Auður.Frá lokatónleikum rokkbúðanna í Berlín síðasta sumar.marzena kocurekLangar að virkja nærsamfélagið í Borgarbyggð Aðspurð um hvernig búðirnar séu fjármagnaðar segir hún að Erasmus-styrkurinn nái að dekka lágmarkskostnað, það er flug, mat og gistingu og eitthvað örlítið meira. Ísland sé hins mjög dýrt miðað við Berlín og því þurfi að fylla upp í nokkur göt. „Þannig að við erum bara mjög opin fyrir samstarfi við fyrirtæki ef þau vilja styrkja okkur á einhvern hátt, með mat, bílaleigubílum, hljóðfærum eða bara hverju sem er. Við erum líka að sækja um fleiri styrki,“ segir Auður. Þá langi skipuleggjendur rokkbúðanna einnig að virkja nærsamfélagið í Borgarbyggð þar sem búðirnar gætu verið gott tækifæri fyrir það samfélag að vekja athygli á sér. „Okkur langar líka að bjóða upp á skoðunarferðir þannig að við munum líka vera í sambandi við aðila í kring ef þeir hafa áhuga á samstarfi,“ segir Auður.
Borgarbyggð Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Fleiri fréttir Lofar svakalegri veislu „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Myndaveisla: Patrik fagnaði PBT 2.0 með tónlistarveislu við höfnina Króli gat ekki hugsað um neitt annað en Bjór Leitt að geta ekki auglýst leynivopnið sem myndi trekkja að Yo-Yo Ma kemur til landsins „Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“ Gervispilanir tröllríða vinsældarlista Spotify Bríet og Birnir rifu þakið af klúbbnum Samdi Höllusmellinn á tuttugu mínútum Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Sjá meira