„Aðþrengd eiginkona“ á meðal ákærðra í háskólasvikamyllu Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2019 15:29 Felicity Huffman (t.h.) og eiginmaður hennar William H. Macy (t.v.) mynda saman ofurparið sem hefur verið nefnt Filliam H. Muffman. Vísir/EPA
Sjónvarpsleikkonur eins og Felicity Huffman og Lori Loughlin eru á meðal tuga manna sem hafa verið ákærðir fyrir að taka þátt í svikamyllu til að koma nemendum inn í nokkra virtustu háskóla Bandaríkjanna og svindla á inntökuprófum. Alríkissaksóknarar í Boston hafa ákært að minnsta kosti fjörutíu manns í tengslum við sviksamlegar skráningar á nemendum í háskólum eins og Yale, Georgetown, Stanford og UCLA. Í ákærunum sem gerðar voru opinberar í dag er því haldið fram að svikamyllunni hafi verið ætlað að hjálpa auðugum Bandaríkjamönnum að greiða fyrir því að börnin þeirra kæmust inn í bestu skólana. Fyrirtæki manns að nafni William Singer er sagt hafa selt þjónustu þar sem það útvegaði fólk til að taka inntökupróf í háskólana fyrir börn viðskiptavina þess. Í sumum tilfellum hafi það komið því þannig fyrir að börnin hafi verið skráð á íþróttastyrk jafnvel þó að þau væru ekki íþróttafólk, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Um 33 foreldri eru ákærð í málinu, þar á meðal Huffman og Loughlin. Huffman er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum „Aðþrengdar eiginkonur“ en Loughlin hefur leikið í gamanþáttunum „Fullu húsi“. Auk þeirra hafa þrettán þjálfarar við háskóla og samstarfsmenn fyrirtækis Singer verið ákærðir.Fréttastofa NBC-sjónvarpsstöðvarinnar segir að ekkert bendi til þess að háskólarnir hafi tekið þátt í svindlinu.
Bandaríkin Lífið Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Sjá meira