Skoðun

Hvar eru Sólveig Anna, Ragnar Þór og Vilhjálmur nú?

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar
Ráðherra dómsmála leggur til breytingar á meðlagsgreiðslum. Hrefna Friðriksdóttir, lagaprófessor við Háskóla Íslands, hefur verið henni innanhandar um smíði þessa frumvarps sem nú er til umsagnar. Fari frumvarpið í gegnum þingið stefnir í fjöldagjaldþrot meðlagsgreiðenda. Ekki er ástandið gott fyrir. Margir meðlagsgreiðendur standa í skuld við sveitarfélögin.

Hrefna Friðriksdóttir leggur til að framfærslan reiknist 75 þúsund krónur á barn sem deilist milli foreldra. Eftir því sem tekjur foreldra hækka er hugmyndin að hækka framfærslueyrinn. Sem sagt mismunun á milli barna eftir fjárhag. Hversu skammarlegt er það. Er dýrarar að sjá fyrir barni þegar tekjurnar hækka, passar það? Framfærsla barnanna á að vera vísitölutryggð sem þýðir að hún hækkar jafnt og þétt en launin eru ekki bundin vísitölu. Hvar endar slíkt? Öllum er ljóst að meðlagsgreiðendur munu lenda í vandræðum.

Meðlagsgreiðsla á líka að vera háð umgegni við barnið af hálfu meðlagsgreiðenda. Hér færir Hrefna lögheimilisforeldri vopn til tálmunar í fjárhagsskyni. Tálmun er nú þegar notuð til að knýja fram viðbótar greiðslur við það sem löggjafinn kveður á um. Margir meðlagsgreiðendur mega sætta sig við tálmun eða greiðslu. Tillagan er galin. Að nokkrum manni detti í hug að setja svona fram er með ólíkindum. Á móti má spyrja Hrefnu hvort henni finnist ekki í lagi að fella niður meðlag þegar tálmum er beitt eða meðlagsgreiðandi fær ekki að hitta barn sitt af öðrum ástæðum. Hér skal tekið fram að ekki er verið að ræða þegar foreldri beitir barn sitt ofbeldi af nokkru tagi.

Verkalýðsleiðtogarnir sem hafa sig nú mest frammi hafa ekki látið heyra frá sér um málið. Með vissu má segja að þetta skipti máli fyrir marga félagsmenn þeirra. Mér er spurn ætlar verkalýðsforystan að láta sem ekkert sé? Greinarhöfundur hefur sent tölvupóst á verkalýðsfélögin sem þessir forystusauðir tilheyra til að vekja athygli þeirra á málinu.

Hvet verkalýðsfélögin að tjá sig um málið, afkoma félagsmanna ykkar er undir.

Höfundur er grunnskólakennari.




Skoðun

Sjá meira


×