Þekkjum við þökin okkar? Höskuldur Goði Þorbjargarson og Eiríkur Ástvald Magnússon og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifa 13. febrúar 2019 13:00 Hefðbundin létt þök með þunnu loftbili eru mjög algeng á íslandi. Þakuppbyggingin er eins og mynd 1 sýnir. Létt timburþak sem er einangrað á milli sperra með loftræstu þunnu loftbili fyrir neðan borðaklæðningu eða krossviðarklæðningu, þakpappa og þakklæðningu. Talið er að áhætta á rakavandamálum í þessari þakgerð sé oft vanmetin. Afleiða hönnunar- og framkvæmdaráhættu eru skemmdir/gallar sem geta valdið uppsöfnun á raka sem síðar leiðir til þess að fara þarf í ótímabærar viðhaldsaðgerðir auk þess sem rakaskemmdir geta haft neikvæð áhrif á heilsu íbúa.Þakuppbyggingin virðist vera næm fyrir ýmsum þáttum, bæði hvað varðar hönnun og framkvæmd. Í fyrsta lagi er algengt að þök af þessari gerð standi lengi opin fyrir veðrum og vindum við framkvæmd. Áhrif byggingarraka eru oft vanmetin í framkvæmd og byggingarefni verða gjarnan fyrir miklu rakaálagi vegna úrkomu á byggingartíma. Byggingarraki í byggingarefnum breytir upphafskilyrðum hönnunarinnar og loftrásin getur átt erfitt með að þurrka raka sem er umfram eðlilegt álag og getur haft töluverð áhrif á heildarafkomu þaksins og langtíma endingu byggingarefna. Dæmi þekkjast um að mygla myndist í byggingarefninu á framkvæmdartíma og einnig eru dæmi um að timbur komi blautt og myglað á verkstað.Talið er líklegt að áhrif loftunnar í þessum þökum séu oft ofmetin. Vegna eyjaloftslags á Íslandi með tiltölulega lágt hitastig og hátt rakastig er geta útilofts til að flytja raka takmörkuð, sérstaklega yfir vetrartímann. Hitastig í loftrásinni er einnig háð geislun bæði frá sól og himinhvolfi. Geislun frá sólinni hjálpar almennt þakinu við að þurrka raka í loftrásinni en geislun til himinhvolfsins getur valdið undirkælingu í loftbilinu sem getur valdið því að raki fellur út á yfirborði borðaklæðningar. Á Íslandi eru naglar fyrir þakjárn yfirleitt negldir í gegnum þakdúk og borðaklæðningu og ná inn í loftrás og við nagla er jafnvel meiri hætta á að raki falli út í loftbilinu við undirkælingu þakflatarins. Í byggingarreglugerð er vísað í hönnunarforsendur varðandi stærð og fjölda loftunarröra og þykktar á loftrásum. Uppruni þessara hönnunarforsenda og fræðin að baki þeim virðast vera óljós. Einnig má búast við því að loftunin geti dregið úr einangrunnargildi vegna lofthreyfinga í steinull.Við hönnun þaka af þessari gerð þarf að hafa ýmis önnur atriði í huga. Útfærslan er notuð á margskonar þakgerðir og oft án þess að tekið sé tillit til stærðar þakflöts eða byggingarhluta sem brjóta upp og loka loftunarleiðum eins og t.d. þakglugga, þakkvista, stalla og hluta burðarvirkis sem gengur uppí loftrás. Huga þarf að takmörkunum hvað varðar lengd loftrása, reikna þarf með þrýstifalli í loftrásinni og taka með í reikninginn að loftun verði óvirk ef loftrásir verða of langar. En jafnvel þó að tekið sé tillit til uppbyggingar þaka og loftunarleiðir útfærðar þar sem mögulegar hindranir á loftflæði eru þá verður að segjast að oft er um að ræða tæknilega flóknar aðgerðir sem oft skila takmörkuðum árangri. Einnig þekkjast dæmi um að loftrásum sé lokað með steinull á framkvæmdartíma. Helstu vandkvæði sem koma upp við framkvæmd er ófullnægjandi frágangur rakavarnarlags. Loftlekar með rakasperru vegna lélegs frágangs bera með sér margfalt meira rakamagn en gufustreymi (e. vapour diffusion) í gegnum rakasperru. Byggingarreglugerðin setur kröfu um að loftlekar bygginga séu ekki meiri en 3m3/m2h fyrir 50Pa mismunaþrýsting. Talið er að í mörgum tilvikum sé þessi krafa ekki uppfyllt og því er líka velt upp hvort að þessi krafa sé nægjanleg til þess að fyrirbyggja uppsöfnun raka í þakuppbyggingunni. Ef litið er til Noregs er krafan um loftleka stífari auk þess að fyrir ákveðnar byggingar er krafa um loftþéttleikapróf á framkvæmdarstigi.EFLA hefur útbúið hermilíkan af þaki af með þunnu loftbili. Niðurstöður hermana sýna að þök af þessari gerð eru viðkvæm fyrir rakaíbætingu innandyra og þéttleika rakavarnarlags. Þegar hermanir fyrir efnisraka í borðaklæðningu eru skoðaðar sést að uppsöfnun verður á raka í borðaklæðningu á ársgrundvelli þegar þéttleika rakavarnarlags er ábótavant og þegar rakaálag innandyra eykst. Þegar efnisraki er hærri en 20% hafa skapast aðstæður fyrir myglu og jafnvel fúa. Eftir þessa umfjöllun spyrja sjálfsagt margir sig af hverju við höfum byggt þök með þessu sniði í áratugi ef aðferðin er svona áhættusöm. Líklega er ein skýringin sú að það er tiltölulega stutt síðan að farið var að skoða mygluvöxt í byggingarefni en áður var ástand borðaklæðningar einungis metið með tilliti til fúa. Einnig getur verið að þessi tegund þaka sé áhættusamari dag en hún var áður. Kröfur um einangrun hafa aukist sem veldur því að líkur á uppsöfnun raka í borðaklæðningu aukist. Auk þess má nefna að veðuraðstæður í þéttbýli hafa breyst, t.d. hefur trjágróður aukist mikið á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugi sem að dregur úr vindþrýstingi sem er aðal drifkraftur loftunnar í þökum. Svo telja margir að rakastig innandyra sé að aukast hvort sem það er vegna minni loftræsingar, t.d. með opnun glugga, eða vegna aukinnar rakaíbætingar. Við teljum þess vegna að ráðlegt sé að rannsaka virkni þessara þaka með tilliti til varma- og rakaflæðis betur og skoða hvort þau séu heppileg fyrir Íslenskar aðstæður og þá með hvaða hætti og í hvaða tilvikum. Við rannsóknir væri hægt að skoða hvort að aðrar uppbyggingar léttra þaka feli í sér minni áhættu með tilliti til rakaskemmda. Til dæmis þök sem eru loftuð utan við öndunardúk eða óloftuð timburþök. Höfundar eru Eiríkur Ástvald Magnússon, Höskuldur Goði Þorbjargarson byggingarverkfræðingar og Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur hjá EFLU verkfræðistofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun