Viðskipti erlent

Facebook stefnir að því að tengja saman Instagram, Messenger og Whatsapp

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Undanfarið ár hefur ekki verið það besta í rekstri Facebook en hér sést stofnandinn og forstjórinn Mark Zuckerberg fyrir bandarískri þingnefnd í fyrra.
Undanfarið ár hefur ekki verið það besta í rekstri Facebook en hér sést stofnandinn og forstjórinn Mark Zuckerberg fyrir bandarískri þingnefnd í fyrra. vísir/getty
Facebook stefnir að því að tengja saman skilaboðaþjónustuna sem samfélagsmiðillinn býður upp á í gegnum Instagram, Facebook Messenger og Whatsapp.

Frá þessu er greint á vef BBC en þar segir að forritin verði öll áfram til notkunar. Þau verða hins vegar tengd saman á mun dýpra plani þannig að skilaboð geta farið á milli mismunandi forrita en Facebook segir að fyrirtækið sé aðeins á byrjunarreit á löngu ferli verkefnisins.

Talið er að um sé að ræða persónulegt verkefni stofnanda og forstjóra Facebook, Mark Zuckerberg.

Gangi það eftir að tengja forritin þrjú saman mun Facebook-notandi geta átt í samskiptum við manneskju sem er bara með til dæmis Whatsapp. Það er ekki hægt í dag þar sem forritin eru alveg aðskilin.

Zuckerberg er sagður þrýsta á um að verkefnið gangi eftir þar sem hann vill að skilaboðaþjónustan verði gagnlegri og notendur verji meira tíma í forritunum þremur.

Verði það að veruleika að tengja forritin þrjú saman gæti Facebook orðið samkeppnishæfara við skilaboðaþjónustu Google og iMessage Apple að sögn blaðamanns The Verge, Makenu Kelly.

Það að tengja forritin þrjú saman er merki um mikla stefnubreytingu hjá Facebook þar sem Instagram og Whatsapp hafa verið nánast algjörlega aðskilin fyrirtæki frá því að þau sameinuðust samfélagsmiðlarisa Zuckerberg.

Þó nokkuð fjaðrafok hefur verið í kringum Facebook undanfarin misseri, ekki síst í kjölfar Cambridge Analytica-skandalsins en samnefnt greiningarfyrirtæki varð uppvíst að misferli með persónuupplýsingar 87 milljóna Facebook-notenda í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Zuckerberg var meðal annars boðaður bæði fyrir bandaríska og breska þingnefnd vegna málsins.


Tengdar fréttir

Hefur enga þýðingu að birta fyrirvara um Facebook á Facebook

Fjölmargir Íslendingar hafa birt yfirlýsingu á Facebook-síðum sínum undanfarinn sólarhring þess efnis að Facebook hafi ekki leyfi til þess að nota myndir, skilaboð og annað hugverk sem þeir hafi sett inn á Facebook og birt opinberlega.

Þingmenn vestanhafs vilja koma böndum á Facebook

Þingmenn í Bandaríkjunum kölluðu í gær eftir betra eftirliti með Facebook eftir að greint var frá því að fyrirtækið hefði veitt stórfyrirtækjum víðtækan aðgang að persónuupplýsingum notenda og einkaskilaboðum þeirra án samþykkis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×