Innlent

Oddviti segir Vegagerðina hafa fengið rauða spjaldið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps.
Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps, segir Vegagerðina sjálfa falla á umferðaröryggisprófi, í grein í Bæjarins besta. Tilefnið er sú niðurstaða Vegagerðarinnar að svokölluð R-leið um Reykhóla, sem sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur stefnt að, standist ekki umferðaröryggismat og sé því ólögleg. 

„Það sem kemur á  óvart, og er uggvænlegt, er hversu illa eini vegurinn sem þegar er til, Reykhólasveitarvegur 607, kemur út úr þessu mati. Reykhólasveitarvegur er hluti af stofnvegakerfi landsins samkvæmt skilgreiningu Vegagerðarinnar,“ segir oddvitinn í grein sinni.

Ingimar Ingimarsson oddviti, Karl Kristjánsson hreppsnefndarmaður og Tryggvi Harðarson sveitarstjóri voru fulltrúar Reykhólahrepps á fundi með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í byrjun mánaðarins.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Hann segir að sömu staðlar gildi og sömu kröfur séu því gerðar fyrir Reykhólsveitarveg og Vestfjarðarveg 60. Á það hafi sveitarstjórn Reykhólahrepps margsinnis bent og einnig að Reykhólasveitarvegurinn og Vestfjarðarvegur að Gilsfjarðarbrú uppfylli ekki kröfur um stofnvegi. 

„Þá höfum við bent á það, sama hvaða leið verður valin fyrir Vestfjarðarveg 60, að uppfæra þurfi veginn frá Gilsfirði að Reykhólum. Þarna verður Vegagerðin að girða sig í brók, ekki ætlum við að bíða eftir slysum hvort sem það er á Reykhólasveitarveginum eða Vestfjarðarvegi að Gilsfjarðarbrú,“ segir Ingimar. 

Hér má sjá leiðirnar tvær sem nú er tekist á um fyrir framtíðarlegu Vestfjarðavegar. Leið Þ-H færi um Teigsskóg. Leið R færi um Reykhóla.Grafík/Hlynur Magnússon.
„Það er Reykhólasveitarvegur sem fellur í öryggismati Vegagerðarinnar, engin teiknuð leið heldur vegur sem er í fullri notkun. Vegur þar sem skólabörn eru keyrð um tvisvar sinnum á dag 180 daga yfir vetratímann eða 360 sinnum.

Þetta umferðaröryggismat er því rauða spjaldið á Vegagerðina, þeir eru veghaldarar og eiga að sjá til þess að vegir uppfylli þá staðla og þær öryggiskröfur sem settar eru. Þessvegna er ekki hægt að segja annað en Vegagerðin hafi kolfallið á þessu umferðaröryggisprófi,“ segir oddvitinn í grein sinni. 

„Ég fagna því þessari umferðaröryggisgreiningu, hún sýnir svart á hvítu fram á nauðsyn þess að uppfæra Reykhólasveitarveg. Ég vil öruggan Reykhólasveitarveg og kalla því strax eftir aðgerðaráætlun frá Vegagerðinni varðandi uppfærslu á honum,“ segir hann ennfremur.

 

Frá Reykhólasveitarvegi um Barmahlíð. Vaðalfjöll í baksýn og Berufjörður til hægri.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Þess má geta að Reykhólasveitarvegur liggur um Barmahlíð sem skáldið Jón Thoroddsen orti um í samnefndu kvæði, með þessum upphafslínum: 

Hlíðin mín fríða

hjalla meður græna 

og blágresið blíða 

og berjalautu væna.


Tengdar fréttir

R-leið um Reyk­hóla féll á um­ferðar­öryggis­mati

Svokölluð R-leið, með stórbrú þvert yfir Þorskafjörð, sem sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur stefnt að, féll á nýju umferðaröryggismati og þyrfti fjögurra milljarða króna kostnaðarauka til að hún teldist hæf til að bera Vestfjarðaumferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×