Handbolti

Guðmundur: Dagur mun örugglega prófa ýmislegt

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Guðmundur Guðmundsson undirbýr sig alltaf vel.
Guðmundur Guðmundsson undirbýr sig alltaf vel. vísir/getty
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, er í óða önn að undirbúa sína stráka fyrir leikinn á móti Japan á morgun en Japan kom verulega á óvart á móti Spáni og var yfir í hálfleik.

„Japan er miklu sterkara lið en Barein. Þeir sýndu það í gær og eru búnir að sýna það í mjög mörgum leikjum finnst mér. Þeir hafa verið að bæta sinn leik og í gær spiluðu þeir frábæran leik að mínu mati, bæði í vörn og sókn,“ segir Guðmundur.

Dagur Sigurðsson stýrir liði Japan en hann hefur oft komið á óvart með sín lið og Guðmundur er ekki frá því að hann beiti einhverjum brögðum á morgun.

„Hann mun örugglega prófa ýmislegt. Ég get lofað þér því. Við ætlum að undirbúa okkur eins vel og við getum gagnvart því sem við eigum von á. Við erum búnir að greina þá vel og við leggjum enn þá meira í það í dag. Leikmennirnir eru að fara núna sjálfir á fund að horfa á leikinn og svo er fundur þar sem ég legg svo fram ákveðnar klippur,“ segir Guðmundur.

Eftir leikinn á móti Japna fá strákarnir okkar um sólarhrings langa hvíld fyrir leikinn á móti Makedóníu en Makedóníumenn aðeins um fimmtán stundir. Skiptir það máli?

„Það er voða erfitt að segja til um það. Maður sér það ekki fyrr en út í leikinn er komið. Ég er bara ekkert að hugsa um Makedóníu núna. Allur minn hugur er á Japan og að undirbúa liðið fyrir það er ærið verkefni,“ segir Guðmundur sem var ánægður með stórsigurinn á Barein.

„Það er jákvæð upplifun. Það er erfitt að byrja mót á að tapa tveimur leikjum og auðvitað fór orka í það, bæði líkamleg og andleg. Þess vegna var gott að fá þennan leik á móti Barein. Tilfinningin er góð að landa fyrsta sigrinum og við gerðum þetta af krafti.“

„Það er líka gott hvernig við erum búnir að rúlla á liðinu og allir eru búnir að stimpla sig inn. Það er enginn að fara að koma inn á í fyrsta skipti og taka úr sér einhvern skrekk. Það var hluti af þessu líka hjá okkur og það er mjög jákvætt,“ segir Guðmundur Guðmundsson.

Klippa: Guðmundur - Undirbúum okkur vel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×