Lyfjarisar semja sig frá lögsókn vegna ópíóíðafaraldursins Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2019 13:06 Lyfjafyrirtækin voru sökuð um að bera ábyrgð á ópíóíðafaraldrinum með offramboði af lyfjunum og að hunsa merki um að verið væri að misnota þau. AP/Darron Cummings
Þrjú stór lyfjadreififyrirtæki og framleiðandi ópíóíðalyfja í Bandaríkjunum hafa fallist á að greiða um 260 milljónir dollara í sátt til að sleppa við málaferli vegna faraldurs sem hefur orðið hundruð þúsundum manna að bana þar í landi. Dómsmálið hefði orðið það fyrsta sinnar tegundar fyrir bandarískum alríkisdómstólum.New York Times segir að samningurinn hafi verið gerður árla morguns vestanhafs og búist sé við að hann verði lagður fyrir dómara í dag. Yfirvöld í tveimur sýslum Ohio-ríkis höfðu stefnt lyfjafyrirtækjunum fjórum og átti aðalmeðferð að hefjast í dag. Dreififyrirtækin þrjú sem eiga aðild að sáttinni eru McKesson, Cardinal Health og AmerisourceBergen auk ísraelska samheitalyfjafyrirtækisins Teva. Ísraelska fyrirtækið keypti Actavis árið 2015. Teva greiðir 20 milljónir dollara hlutdeild í sáttinni og 25 milljónir dollara til viðbótar í lyf fyrir þá sem eru háðir ópíóíðum.Að sögn Washington Post hefðu málaferlin getað kostað fyrirtækin nær átta milljörðum dollara hefði dómari orðið við kröfum Cuyahoga- og Summit-sýslna. Sýsluyfirvöld saka fyrirtækin um að bera ábyrgð á ópíóíðafaraldrunum með því að dæla gríðarlegu magni lyfja út á markaðinn þar. Dreififyrirtækin hafi lítið gert til að koma í veg fyrir að þau væru seld á svörtum markaði. Blinduð af gróðavon hafi þau hunsað augljós varúðarmerki þegar þau fylltu pantanir. Á þriðja þúsund borga, sýslna og ættbálka frumbyggja hafa stefnt lyfjafyrirtækjunum. Sáttin nú er sögð kaupa fyrirtækjunum tíma til að ná samkomulagi í þeim málum. Lyfjaverslanarisinn Walgreens, sem einnig var stefnt í málum Ohio-sýslnanna, á ekki aðild að sáttinni í dag. Washington Post segir ekki ljóst hvort dómsmálið haldi áfram aðeins gegn Walgreens. Sjötti sakborningurinn í málinu hefur einnig gert sátt utan dóms. Teva seldi verksmiðju og skrifstofuhúsnæði Actavis í Hafnarfirði í fyrra. Ísraelska fyrirtækið á enn dreififyrirtæki Medis sem áfram er rekið í Hafnarfirði.
Bandaríkin Lyf Tengdar fréttir Aldrei fleiri lyfjatengd andlát Þrjátíu og níu manns dóu vegna lyfjaeitrunar í fyrra, fleiri en nokkru sinni fyrr á einu ári. Flestir létu lífið vegna morfínskyldra lyfja og eru vísbendingar um að meira sé flutt ólöglega til landsins nú en áður. Þróunin er stórhættuleg að mati lyfjateymis embættis landlæknis. 10. maí 2019 20:12 "Kvalabandalagið“ greiddi lækni til að gera lítið úr hættu ópíóíða Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa látist í ópíóíðafaraldrinum síðustu áratugi. Fyrirtæki sem var sektað um tugi milljarða vegna hans beitir nú sömu brögðum til að selja lyfin í Evrópu og víðar. 2. júní 2019 11:00 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Aldrei fleiri lyfjatengd andlát Þrjátíu og níu manns dóu vegna lyfjaeitrunar í fyrra, fleiri en nokkru sinni fyrr á einu ári. Flestir létu lífið vegna morfínskyldra lyfja og eru vísbendingar um að meira sé flutt ólöglega til landsins nú en áður. Þróunin er stórhættuleg að mati lyfjateymis embættis landlæknis. 10. maí 2019 20:12
"Kvalabandalagið“ greiddi lækni til að gera lítið úr hættu ópíóíða Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa látist í ópíóíðafaraldrinum síðustu áratugi. Fyrirtæki sem var sektað um tugi milljarða vegna hans beitir nú sömu brögðum til að selja lyfin í Evrópu og víðar. 2. júní 2019 11:00