Sigursteinn Arndal tekur við FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. mars 2019 13:00 Sigursteinn Arndal tekur við uppeldisfélaginu sínu. Hér er hann með Ásgeiri Jónssyni, formanni FH, á blaðamannafundinum í dag. Vísir/TOM
Sigursteinn Arndal var í dag ráðinn næsti þjálfari FH í Olís-deild karla í handbolta en hann tekur við liðinu eftir tímabilið þegar að Halldór Jóhann Sigfússon lætur af störfum. Sigursteinn Arndal skrifar undir þriggja ára samning við FH en samningurinn var kynntur í Kaplakrika í dag. Sigursteinn er uppalinn hjá FH og spilaði lengi með liðinu og var þar aðstoðarþjálfari um tíma. Hann þjálfaði áður U20 og U21 árs landslið Íslands og er kominn aftur inn í teymið þar. Halldór Jóhann Sigfússon, sem gerði FH að bikarmeisturum um helgina, ákvað að framlengja ekki samninginn sinn í Kaplakrika en hann er að fara að stýra yngri landsliðum Barein. Sigursteinn Arndal hefur verið einn af aðalmönnunum í kringum Olís-deildina á Stöð 2 Sport þar sem hann meðlýsir í öllum beinum útsendingum. FH-liðið fór í úrslit Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð en tapaði fyrir ÍBV og það fór sömuleiðis alla leið árið 2017 en tapaði þá fyrir Val. FH er í fjórða sæti Olís-deildarinnar eftir 17 umferðir en liðið mætir næst Aftureldingu í stórleik á sunnudagskvöldið.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira