Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði en á hádegisfundi í dag var meðal annars kynnt ný skýrsla um íbúðaþörf á Íslandi til ársins 2040.
Í tilkynningunni segir að að líkindum muni skorta fleiri þriggja herbergja íbúðir inn á markaðinn en nú eru til sölu og leigu. Þá ályktun megi draga af nýlegri spurningakönnun Íbúðalánasjóðs þar sem flestir aðspurðra hafi sagst vilja flytja í þriggja herbergja íbúð.
„Þegar spurt var um óska fermetrafjölda íbúðar var algengasta bilið 80-120 fm. Þær íbúðir sem er nú eru í uppbyggingu eru að meðaltali á bilinu 110-120 fm að stærð og eru því í efri mörkum þess bils sem mest eftirspurn er eftir.“
Róttækar breytingar
Haft er eftir Ólafi Heiðari Helgasyni, hagfræðingi í hagdeild Íbúðalánasjóðs, að róttækar breytingar gætu átt eftir að sjást á eftirspurn eftir stærð íbúða, líkt og spár sjóðsins um fjölgun einstaklingsheimila væru til merkis um.„Nú eru um 30% allra heimila einstaklingsheimili en við áætlum að helmingur allrar fjölgunar heimila til ársins 2040 verði vegna einstaklingsheimila. Þetta er meðal annars vegna breytts fjölskyldumynsturs, minnkandi barneigna og mikillar fjölgunar eldri borgara á næstu árum. Mörg pör eignast nú aðeins eitt barn og margir eldri borgarar búa einir, auk þess sem algengt er að þeir sem eru tveir í heimili kjósi að minnka við sig húsnæði. Það mætti kannski segja að meðalíbúð framtíðarinnar sé 100 m2, þriggja herbergja og með frá einum og upp í þrjá íbúa. Það er mikil breyting. Um leið er þó rétt að minna á að enn vantar sárlega íbúðir sem eru minni en 100 fm. Hagkvæmar smáíbúðir ekki síst. Þar er ennþá stórt gat á húsnæðismarkaðnum sem þarf líka að uppfylla,“ segir Ólafur.