„Even Labs er svokallað „wellness center“ og býður upp á meðferðir sem hjálpa líkamanum að vinna gegn öldrun og hjálpa við ýmsa kvilla, svo sem liðabólgur, gigt, bjúg, húðvandamál og jafnvel nætursvefninn. Ég hef sjálf stundað flestar þessara meðferða í nokkur ár erlendis og fannst tími til kominn að hafa þær í boði hérna heima líka.“
Einnig hefur hún verið að undirbúa tvær fegurðardrottningar frá Miss Universe Iceland. Manuela Ósk er framkvæmdastjóri og eigandi keppninnar hér á landi. Þær Hugrún Birta Egilsdóttir og Birta Abiba Þórhallsdóttir eru staddar erlendis að keppa fyrir Íslands hönd. „Þær gera mig svo rosalega stolta - og þetta verkefni er eitt það mest gefandi starf sem ég hef tekið að mér.“
Næsta Miss Universe Iceland verður svo krýnd 29.maí 2020. „Við ákváðum að halda keppnina aðeins fyrr - og gefa því sigurvegurum og mér lengri tíma í undirbúning. Núna erum við með þrjá stóra titla og mikið sem þarf að gera til að þær séu sem best undirbúnar.“
„Svo hef ég verið að æfa á fullu fyrir Allir geta dansað en fyrsti þáttur er einmitt núna á föstudaginn. Ég vona að mér takist að heilla áhorfendur upp úr skónum með danstöktum mínum, en ef eitthvað klikkar þá er ég með nokkra brandara bak við eyrað til að bjarga mér.“Hér útgáfa Manuelu Óskar af Bone-orðunum 10. Hvað finnst henni heillandi og óheillandi í fari manneskju?
ON:
1. SamskiptafærniÞað er bara lykilatriði fyrir mig að einstaklingurinn geti tjáð sig - og tali hreint út um hlutina, sama hvað það er. Ég er rosa góð í rökræðum en ég er ömurlega í að rífast, og reyni að komast hjá hlutum sem ég er ekki góð í!
2. Ástríða
Ég held að ég sé snertifíkill, finnst rosa gott að láta knús mig og strjúka mér - þannig að ástríða er mikilvæg fyrir mig. Mér finnst gaman að finna að viðkomandi er alveg sjúkur í mig.
3. Handlagni
Það er ekkert meira sexy en karlmaður sem getur allt og bara gengur í verkin. Sign me up!
4. Húmor
Leiðin að hjartanu mínu ég sverða.
5. Barngæska
Mér finnst rosalega heillandi þegar menn eru góðir við börn - sín eigin og líka annarra. Að nenna að gefa börnum tíma og athygli er kostur sem ekki allir hafa.

OFF:
1. MunntóbakMér hefur alltaf þótt þetta mjög óheillandi atriði - að sjá menn með stútfulla efrivör af tóbaki.
2. Hroki
Er til eitthvað minna sjarmerandi en hrokafullur einstaklingur? Einmitt, hélt ekki.
3. Óheiðarleiki
Ég held að heiðarleiki sé grunnurinn að góðu sambandi. Traust er svo mikilvægt - og þegar það er komið vantraust í sambandið þá er allt einhvern veginn svo miklu erfiðara.
4. Leti
Ég er alltof mikil A manneskja til að nenna lötum karlmönnum. Ef hann sefur til hádegis þá eigum við ekki samleið.
5. Að sofna með sjónvarpið á
Óskiljanlegt að mínu mati. Sumir geta varla farið að sofa án þess að hafa kveikt á sjónvarpinu. Bláir geislar alla nóttina og ekki beint friðsæll svefn - nei takk, ekki fyrir mig.
