Markalaust hjá Cardiff og Newcastle Einar Sigurvinsson skrifar 18. ágúst 2018 13:30 Nathaniel Mendez-Laing mætir Jonjo Shelvey í leiknum í dag. Vísir/Getty Cardiff og Newcastle skildu jöfn þegar liðin mætturí opnunarleik 2. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikurinn fór fram í Wales og endaði 0-0. Fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, Aron Einar Gunnarsson, var ekki í leikmannahópi Cardiff en hann er frá vegna hnémeiðsla. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og gerðist fátt markvert. Á 67. mínútu var Isaac Hayden rekinn af velli fyrir brot á Josh Murphy. Hann hafði komið inn í lið Newcastle í hálfleik og tókst því aðeins að spila 22 mínútur. Á síðustu sekúndum leiksins fékk Newcastle vítaspyrnu og gullið tækifæri til þess að vinna leikinn. Boltinn fór í höndina á Sean Morrison og vítaspyrna dæmd. Kennedy, sem átti ekki sendingu á samherja í fyrri hálfleik steig á punktinn en Neil Etheridge varði frá honum spyrnuna. Í fyrstu umferð tapaði Newcastle fyrir Tottenham og Cardiff fyrir Bournemouth. Bæði lið er því enn án sigurs eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni og með eitt stig. Enski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn