Sýndarlýðræði Reykjavíkurborgar Skúli J. Björnsson skrifar 22. maí 2018 11:59 Við íbúar við Eikjuvog í Reykjavík vorum að vonum glöð að sjá loks glitta í að gangstéttin við austanverða götuna yrði endurgerð eftir áratuga bið. Hún var orðin hættuleg, brotin og skemmd og hafði valdið slysum. Reykjavíkurborg réðist í þessar framkvæmdir sumarið 2017. Á sama tíma voru okkur íbúum send tilkynning um fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar að Eikjuvogi 27 - lítillar, gróinnar lóðar sem sett hefur skemmtilegan svip á þessa rólegu götu. Við fengum senda kynningu á fyrirhugaðri framkvæmd og var kynntur réttur okkar til að gera athugasemdir. Allir íbúar Eikjuvogs og aðliggjandi gatna sem náðist í skrifuðu undir mótmælaskjal gegn því að reist yrðu há tvö hús með þremur íbúðum á lóðinni. Við neðanverða götuna eru eingöngu einbýlishús utan eins húss og þessar byggingar eru mikið lýti á þeirri götumynd.Slysagildran að Eikjuvogi.Til marks um vanvirðingu borgaryfirvalda á rétti okkar íbúanna og hunsun á íbúalýðræði var gangstéttin EKKI steypt fyrir framan lóðina að Eikjuvogi 27! Þar hefur verið í allan vetur verið gryfja sem fyllist af vatni, ís og snjó og veldur gangandi fólki vandræðum svo að ekki sé talað um hjólandi vegfarendur! Yfirvöld Reykjavíkurborgar voru þess fullviss að mótmæli íbúa við breytingu á þessu deiliskipulagi myndi engu breyta og þessi hús yrðu reist hvað sem tautaði og raulaði. Þessi ráðstöfun borgarinnar er nú í kæruferli hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Á meðan verður slysagildra þessi vitnisburður um íbúalýðræði sem er bara til í glærusjóum. Skúli J. Björnsson framkvæmdastjóri Eikjuvogi 29 Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr. Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Við íbúar við Eikjuvog í Reykjavík vorum að vonum glöð að sjá loks glitta í að gangstéttin við austanverða götuna yrði endurgerð eftir áratuga bið. Hún var orðin hættuleg, brotin og skemmd og hafði valdið slysum. Reykjavíkurborg réðist í þessar framkvæmdir sumarið 2017. Á sama tíma voru okkur íbúum send tilkynning um fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar að Eikjuvogi 27 - lítillar, gróinnar lóðar sem sett hefur skemmtilegan svip á þessa rólegu götu. Við fengum senda kynningu á fyrirhugaðri framkvæmd og var kynntur réttur okkar til að gera athugasemdir. Allir íbúar Eikjuvogs og aðliggjandi gatna sem náðist í skrifuðu undir mótmælaskjal gegn því að reist yrðu há tvö hús með þremur íbúðum á lóðinni. Við neðanverða götuna eru eingöngu einbýlishús utan eins húss og þessar byggingar eru mikið lýti á þeirri götumynd.Slysagildran að Eikjuvogi.Til marks um vanvirðingu borgaryfirvalda á rétti okkar íbúanna og hunsun á íbúalýðræði var gangstéttin EKKI steypt fyrir framan lóðina að Eikjuvogi 27! Þar hefur verið í allan vetur verið gryfja sem fyllist af vatni, ís og snjó og veldur gangandi fólki vandræðum svo að ekki sé talað um hjólandi vegfarendur! Yfirvöld Reykjavíkurborgar voru þess fullviss að mótmæli íbúa við breytingu á þessu deiliskipulagi myndi engu breyta og þessi hús yrðu reist hvað sem tautaði og raulaði. Þessi ráðstöfun borgarinnar er nú í kæruferli hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Á meðan verður slysagildra þessi vitnisburður um íbúalýðræði sem er bara til í glærusjóum. Skúli J. Björnsson framkvæmdastjóri Eikjuvogi 29