DV Dagleg Vitleysa Þorsteinn Sch. Thorsteinsson skrifar 22. júní 2018 11:45 Það hefur átt sér stað mikill breyting hjá DV frá því að Kormákur Guðjónsson tók við ritstjórn, nú þurfa blaðamenn alls ekki að vanda upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu, hvað þá sýna fyllstu tillitsemi. Eftir lestur greinar hans Kristjóns Kormáks ritstjóra þann 27. apríl sl., þá var mér það ljóst að ritstjórinn lagði mikið á sig til að koma inn persónuárásum. Í þessari umfjöllun Kristjóns er ekki var borin undir samþykki, þá valdi Kristjón þá leið einnig að koma inn ósannindum og slíta setningar í sundur, til þess eins að sverta mann niður. Kristjón velur ekki þá leið að hafa samband við viðkomandi áður, heldur segir eftir á að hann hafi reynt að hafa samband, svona rétt eins og hann gefi sér það alltaf, að þögn sé sama og samþykki. Það er ekki rétt að ég eigi að hafa sagt: „hverjir það séu sem að stýra heiminum á bak við tjöldin“, heldur minntist ég á fjölmiðla, bankaelítur og vopnasöluframleiðendur. Varðandi Davið Icke og eðlufólk, þá svaraði ég Kristjóni, að ég tryði ekki á þessar kenningar Davíðs Icke um eðlufólk, en Kristjón kemur inn þeirri lygi í greininni „Hann er fimm mínútur frá því að tala um eðlufólk...“. Það vita það nú allir sem þekkja mig, að ég trúi EKKI á að eðlufólk sé til. En hvers vegna var Kristjón að koma inn þessum lygum með, að „Hann er fimm mínútur frá því að tala um eðlufólk..“, nema til þess eins þá að sverta og klína á mig einhverju sem að ég átti alls ekki skilið? Þegar að ég sagði við hann Kristjón, að „þetta er algjör áróður í Morgunblaðinu og áróðursblað, en það góða við blaðið er að það geta allir fengið að skrifa í það“, þá kaus Kristjón að slíta setninguna í sundur, og þannig til að koma bara inn: „Þetta er algjör áróður. Áróðursblað“. Hvað varðar ásakanir hans um að undirritaður eigi að hafa afgreitt tvær 17 ára stúlkur, þá sé ég ekki neinar sannanir fyrir því hjá DV, og ekki athugaði hann Kristjón það neitt á staðnum. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég get hugsanlega gert mistök, og ef svo er þá biðst ég velvirðingar á því, en í þessu tilfelli hvað varðar ásakanir um þessar tvær 17 ára stúlkur, þá tel ég svo alls ekki hafa verðið. Kristjón fer alls ekki eftir því sem segir með, að „hver maður er talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð“, heldur dæmir sjálfur í málinu, svo og til að selja DV. Kristjón kemur inn því bulli með að það „..kæmi ekki á óvart að hún [pylsan] hafi legið í pottinum í nokkra daga“. Ekki kvartaði Kristjón yfir pylsunni eða hvað þá kom með eina einustu athugasemd í því sambandi þarna í söluturninum. Undirritaður er á því að þetta sé illkvittnislega gert, og að Kristjón hati undirritaðan mjög mikið. Ég veit það ekki en kannski eru menn heiðraðir og verðlaunaðir sérstaklega hjá DV fyrir að níðast á fólki með óleyfilegri myndbirtingu og fullu nafni. Menn spyrja mig, „hvað heldur þú Þorsteinn að margir skemmtistaðir, veitingastaðir og vínveitingastaðir hafi óvart afgreitt einhvern sem að þeir töldu vera 21 árs, en var svo undir aldri, og ekki var svona hraunað og drullað yfir þá eins og þig? Þessi Kristjón hann hatar þig, það er ekki spurning.“ Þetta með að ég eigi hafa sagt : „Spilakassarnir komu fyrst, svo þurfti ég að bæta við ... spilakössum og þá þurfti ég að hafa vínveitingaleyfi, svarar Þorsteinn og slítur samtalinu“, eru ekkert annað en ósannindi því að í þessu sambandi þá var EKKI haft samband við undirritaðan fyrir birtingu greinar hans Kristjóns, nú og ef þetta símtal hefur verið hljóðritað, þá er þetta ALLS EKKI rödd undirritaðs. Eftir birtingu greinarinnar þá fékk undirritaður að vita það, að ritstjórinn hefði farið með tóma þvælu, þar sem það liggur fyrir að ritstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn sjálfur hefðu komið pennanum (með földu myndavélinni í) fyrir þarna í vasanum, en ekki að einhver hefði laumað þessum penna á sig. Þar sem að Kristjón segist EKKI hafa náð sambandi við undirritaðan, þá hefði hann einfaldlega geta sent SMS og/eða tölvupóst með leyfi til að birta í blaðinu, en þetta hjá honum snérist allt saman um að selja DV. þar sem allt það mannlega er látið víkja til að selja DV, eða svo að blaðið verði ekki gefið út næst einu sinni í mánuði.Höfundur er margmiðlunarfræðingur og afgreiðslumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun