Árni Þór í Hauka úr Val Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. janúar 2018 18:30 Árni Þór er farinn í Hauka. vísir/eyþór
Handboltamaðurinn Árni Þór Sigtryggsson er genginn í raðir Hauka úr Val eftir aðeins hálft tímabil með Valsmönnum í Olís-deildinni. Árni Þór, sem kom frá Aue til Vals fyrir tímabilið, hefur ekki staðið undir væntingum og var samningi hans við Hlíðarendafélagið sagt upp á dögunum. Árni Þór spilaði alla fjórtán leiki Vals í Olís-deildinni og skoraði aðeins 1,7 mörk að meðaltali í leik með 49 prósent skotnýtingu. Hann hefur verið að gefa tæpar tvær stoðsendingar í leik. Þessi annars öfluga skytta hefur spilað fína vörn með Valsliðinu og er með 1,5 löglegar stöðvanir í leik samkvæmt tölfræði HB Statz en dagar hans með Val eru taldir. Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, stökk á tækifærið að bæta Árna Þór í raðir Hafnafjarðarliðsins en Haukarnir hafa átt í basli með að manna skyttustöðuna hægra megin. Þetta verður í annað sinn sem Árni Þór spilar fyrir Hauka en hann gekk í raðir liðsins frá Akureyri árið 2005 og spilaði tvær leiktíðir. Hann skoraði þá 234 mörk í 47 leikjum frá 2005-2007 eða fimm mörk að meðaltali í leik. Valur er í þriðja sæti Olís-deildarinnar með 21 stig eftir fjórtán leiki og mætir Selfossi í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD annað kvöld. Haukar eru í fimmta sæti með 17 stig en þeir mæta Stjörnunni annað kvöld klukkan 20.00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og má búast við annarri frumraun Árna Þórs í búningi Hauka í þeim leik.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira