Stærstu samningar um sölu á íslenskri jarðhitaþekkingu Kristján Már Unnarsson skrifar 10. janúar 2018 20:00 Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjóri Reykjavík Geothermal. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Íslenska orkufyrirtækið Reykjavík Geothermal hefur samið við stjórnvöld í Eþíópíu um uppbyggingu tveggja fimmhundruð megavatta jarðhitavirkjana. Þetta eru langstærstu samningar sem Íslendingar hafa gert erlendis á sviði orkumála og skila tugmilljarða króna tekjum til Íslands á næstu árum.Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við framkvæmdastjóra Reykjavík Geothermal, Guðmund Þóroddsson, sem áður stýrði Orkuveitu Reykjavíkur um árabil, en innan Reykjavík Geothermal, eða RG, hefur safnast löng reynsla af jarðhitaverkefnum í um þrjátíu löndum. Samningarnir sem undirritaðir voru í höfuðborginni Addis Ababa rétt fyrir jól slá hins vegar allt annað út sem Íslendingar hafa gert til þessa í hinum alþjóðlega orkugeira. „Afgerandi stærsta verkefni sem við höfum landað erlendis í jarðhita og virkjunum. Það er engin spurning,“ segir Guðmundur. Eþíópía er næstfjölmennasta ríki Afríku með yfir eitthundrað milljónir íbúa og að flatarmáli tíu sinnum stærra en Ísland. Verkefnið felst í að byggja upp tvær jarðhitavirkjanir sunnan Addis Ababa, í Tulu Moye og Corbetti, sem hvor um sig verður 520 megavött. „Hvort verkefni um sig er um það bil tvöþúsund milljónir bandaríkjadala. Þannig að þetta eru heljarstór verkefni, svona álíka stór og Kárahnjúkavirkjun, hvort um sig,“ segir Guðmundur. Nýjasta jarðgufuvirkjun Íslendinga á Þeistareykjum bliknar í samanburðinum. „Orkulega séð eru hvort verkefni um sig svona fimm sinnum stærra en Þeistareykjavirkjun. Og fjárfestingarlega séð heldur stærra vegna þess að það er aðeins dýrara að reisa svona í Eþíópíu heldur en á Íslandi.“Frá fyrirhuguðu virkjanasvæði í Corbetti, suður af Addis Ababa.Mynd/Reykjavík Geothermal.Hlutverk RG er ekki aðeins að rannsaka jarðhitann og semja við stjórnvöld um verkefnin, heldur einnig að finna orkukaupendur og fjárfesta. „Við erum komnir með alla þessa þætti, búnir að fjármagna þau, búnir að ná samningum við stjórnvöld, gera rannsóknir á jarðhitanum og raunar byrjaðir aðeins á vegum og þessháttar.“ Og RG er meðal eigenda. „Til að mynda í augnablikinu eigum hálft annað verkefnið og tæp þrjátíu prósent í hinu. Þannig að við erum stórir eignaraðilar í þessum verkefnum, já,“ segir Guðmundur. Þetta kallar á mörghunduð íslensk ársverk og ekki bara hjá 25 starfsmönnum RG næsta áratuginn eða svo. Guðmundur nefnir samstarfsfyrirtæki eins og Jarðboranir, Mannvit, Verkís og VSÓ en einnig íslenskar lögfræðistofur og endurskoðunarskrifstofur. „Þannig að það er heilmikið af íslenskri þekkingu sem fer inn í þessi verkefni.“ Sem þýðir miklar útflutningstekjur fyrir sölu á íslensku hugviti. „Tugir milljarða. Það fer eftir því hversu mikið af sérfræðiþjónustunni er keypt frá Íslandi. En við sjáum einhverja tugi milljarða íslenskra,“ segir Guðmundur Þóroddsson. Meðal þeirra sem fjallað hafa um verkefnið eru umhverfismiðillinn Green Matters, sem sagði jarðhitann mjög aðlaðandi endurnýjanlega orku á svæðinu, og Reuters-fréttastofan, sem hafði eftir forstjóra Raforkufyrirtækis Eþíópíu að þetta myndi án vafa hafa veruleg áhrif á efnahagslega velferð landsins. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Tengdar fréttir Reykjavík Geothermal fær 640 milljóna króna styrk Reykjavík Geothermal fékk nýverið styrk vegna jarðvarmaverkefnis í Suður-Eþíópíu. Samningur við ríkisstjórn landsins gerir ráð fyrir um eitt þúsund megavatta orkuveri. 5. febrúar 2014 07:15 Íslendingar í risavöxnu jarðvarmaverkefni í Eþíópíu Íslenskt jarðvarmafyrirtæki stendur í ströngu í Eþíópíu og hefur komið að þróun risavaxins jarðvarma-raforkuvers sem fullklárað mun kosta jafnvirði 260 milljarða króna. Fyrirtækið er einnig með verkefni í farvatninu í Karabíska hafinu og Mexíkó. 30. júlí 2015 19:00 Mest lesið Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Tölum um neytendamál! „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Sjá meira
Reykjavík Geothermal fær 640 milljóna króna styrk Reykjavík Geothermal fékk nýverið styrk vegna jarðvarmaverkefnis í Suður-Eþíópíu. Samningur við ríkisstjórn landsins gerir ráð fyrir um eitt þúsund megavatta orkuveri. 5. febrúar 2014 07:15
Íslendingar í risavöxnu jarðvarmaverkefni í Eþíópíu Íslenskt jarðvarmafyrirtæki stendur í ströngu í Eþíópíu og hefur komið að þróun risavaxins jarðvarma-raforkuvers sem fullklárað mun kosta jafnvirði 260 milljarða króna. Fyrirtækið er einnig með verkefni í farvatninu í Karabíska hafinu og Mexíkó. 30. júlí 2015 19:00