WOW air greindi í gær frá hagræðingaraðgerðum sem fela í sér uppsagnir á 111 fastráðnum starfsmönnum. Að sama skapi munu samningar við verktaka og tímabundna starfsmenn ekki verða endurnýjaðir að svo stöddu og flugvélum fækkar sömuleiðis úr 20 í 11. Skúli Mogensen segir í Fréttablaðinu í dag að verið sé að laga reksturinn að rekstrarlíkani flugfélaga í eigu Indigo Partners sem rekin eru sem ofurlággjaldaflugfélög.
Sérfræðingur í greiningardeild Arion banka telur líklegt að sú staðreynd að WOW air sé nú að draga saman seglin um sem nemur hátt í helming flugflota félagsins, muni að öllum líkindum leiða til fækkunar ferðamanna á næsta ári, komi ekki til viðbragða af hálfu annarra flugfélaga.
„Horfur eru á að um 2,3 milljónir ferðamanna sæki landið heim á þessu ári, þar af hefur verið áætlað að um 650 þúsund séu á vegum WOW air. Hvort og hve mikill samdrátturinn verður á næsta ári mun ráðast af viðbrögðum annarra flugfélaga,“ segir hann.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur hjá Hagfræðideild Landsbankans, segir að ef dregið verði úr framboði á flugleiðum geti það orðið til þess að verð á flugmiðum hækki. Spurningin sé síðan hvort forsvarsmenn Icelandair hafi yfirhöfuð hug á að grípa þann bolta og hefja flug á leiðum þar sem WOW air hættir. Sveinn telur að stefnubreyting WOW nú sé skynsamleg.

Hagræðing heggur skarð í fjöldatölur
„Það að WOW air sé að draga saman seglin sem nemur hátt í helmingsminnkun flugflotans mun að öllum líkindum leiða til þess að ferðamönnum fækki á næsta ári komi ekki til viðbragða af hálfu annarra flugfélaga,“ segir Elvar Ingi Möller, sérfræðingur á greiningardeild Arion banka.Greiningaraðilar hafa reiknað með litlum vexti í fjölda ferðamanna á næsta ári. „Horfur eru á að um 2,3 milljónir ferðamanna sæki landið heim á þessu ári, þar af hefur verið áætlað að um 650 þúsund séu á vegum WOW air. Hvort og hve mikill samdrátturinn verður á næsta ári mun ráðast af viðbrögðum annarra flugfélaga,“ segir hann.
Elvar Ingi segir að á hluthafafundi Icelandair Group í lok nóvember hafi komið fram að félagið telji sig geta stækkað leiðakerfi sitt um allt að 35% prósent á næsta ári ef til verulegs samdráttar í flugframboði hingað til lands kæmi. „Framvindan mun því að miklu leyti ráðast af því hver viðbrögð Icelandair, sem og annarra flugfélaga, verður við þessum tíðindum.“

„Svo er stóra spurningin hvort forsvarsmenn Icelandair hafi hug á að grípa þann boltann og hefja flug á þeim leiðum þar sem WOW air hættir. Ekki hefur komið í ljós hvaða flugleiðir WOW air mun leggja niður og hvernig nýju leiðakerfi þeirra verður háttað. Hvernig sú mynd er mun ráða miklu um næstu skref Icelandair. Að öllum líkindum mun WOW air hætta flugi á vesturströnd Bandaríkjanna og fella niður aðrar óarðbærar leiðir. Slíkt styrkir rekstur WOW air því eftir standa arðbærari flugleiðir. En það kann að vera að það sé ekki eftir miklu að slægjast þar fyrir Icelandair. Það verður hins vegar fróðlegt að fylgjast með hvort erlend flugfélög sjái tækifæri í flugleiðunum,“ segir Sveinn.
Sveinn segir að stefnubreyting WOW air sé skynsamleg. WOW air hyggst einbeita sér að rekstri alvöru lággjaldaflugfélags og hætta að selja dýrari sæti. „Lággjaldaflugfélög hafa haft tilhneigingu til að bjóða dýrari sæti því framlegð af sölunni er mikil. Að sama skapi hafa rótgróin flugfélög leitast eftir að selja ódýr sæti eins og lággjaldaflugfélögin þrátt fyrir að vera mun dýrari í rekstri. Sú þróun skilar lítilli aðgreiningu á milli flugfélaga. Þess vegna líst mér vel á að WOW air skerpi á stefnunni og leiti aftur í upprunann. Það gæti verið skynsamleg stefna í samstarfi við nýjan hluthafa ef samningur við Indigo Partners verður að veruleika.“
Laga reksturinn að líkani Indigo
WOW air greindi í gær frá hagræðingaraðgerðum sem fela í sér uppsagnir á 111 fastráðnum starfsmönnum. Að sama skapi munu samningar við verktaka og tímabundna starfsmenn ekki verða endurnýjaðir að svo stöddu. Breytingarnar fela einnig í sér að WOW air mun fækka flugvélum, úr tuttugu í ellefu, og verða eingöngu flugvélar af gerðinni Airbus A321 og A320 í flota félagsins.Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri WOW air, játar í samtali við Markaðinn að ráðist hafi verið í breytingarnar á leiðakerfi og flota til þess að laga reksturinn að rekstrarlíkani flugfélaga í eigu Indigo Partners sem eru rekin sem ofurlággjaldaflugfélög.
„Okkar upprunalega stefna er hins vegar sama stefna og hjá Indigo en því miður gerðum við þau mistök að fara út fyrir þá stefnu,“ segir Skúli. Hann játar einnig að draga megi þá ályktun af því að ráðist var í breytingarnar að viðræðurnar við Indigo gangi vel. Hins vegar sé erfitt að segja til um hvenær niðurstöðu af viðræðuferlinu megi vænta.
„Eins og hefur komið fram eru viðræðurnar háðar nokkrum skilyrðum. Eitt atriðanna er flugleiðakerfið og við erum að taka á því. Við þurfum jafnframt að ná saman við leigusala um að skila vélum og/eða selja flugvélar eins og við erum að gera og sú vinna gengur vel. Síðan þurfum við að ná samningum við skuldabréfaeigendur um breytta skilmála og sú vinna er einnig í gangi.“