Messan: Í þessu eru Liverpool menn orðnir miklu betri í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2018 13:30
Liverpool liðið mætir Porto í Meistaradeildinni í kvöld en um helgina vann liðið sinn fjórða leik í röð í öllum keppnum. Messan fór yfir frammistöðu Liverpool liðsins í sigurleiknum á móti Newcastle og tók sérstaklega fyrir eitt marka liðsins í leiknum. Reynir Leósson hafi sterka skoðun á því sem Liverpool liðið er að geta betur að undanförnu en sem dæmi fyrir áramót. „Við höfum verið að tala um það hvernig Liverpool liðið er þegar þeir vinna boltann og fara í skyndisóknir. Þeir eru algjörlega frábærir í því en það sem mér finnst þeir vera orðnir miklu betri í dag er hratt spil,“ sagði Reynir. „Þeir halda boltanum og setja svo allt í einu upp tempóið þegar andstæðingurinn er kominn í stöðu. Þeir voru að ströggla við það fyrr á leiktíðinni að brjóta varnir andstæðinganna niður,“ sagði Reynir. „Mér finnst þeir geta blandað leiknum miklu betur eftir áramót. Þeir láta boltann ganga og allt í einu setja þeir tempóið af stað. Við sjáum að þarna eru þeir búnir að halda boltanum lengi,“ sagði Reynir og fór yfir dæmi um spilamennsku Liverpool á móti Newcastle. Reynir tók líka fyrir annað mark Liverpool í leiknum því þar er Newcastle komið í varnarstöðu og leikmenn liðsins búnir að koma sér fyrir. „Liverpool liðið heldur boltanum en á örskotsstundu eftir að hafa verið rólegir þá spila þeir boltanum hratt í gegnum liðið og brjóta þannig upp vörn andstæðingsins,“ sagði Reynir. Það má sjá þessar sóknir Liverpool og umfjöllun Messunnar um þær í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Sleikti sólina á snekkju en þurfti svo að drífa sig á EM Fótbolti Leik lokið: Grindavík - Valur | Valskonur í undanúrslit eftir sex marka sigur Íslenski boltinn „Ég er ekki fórnarlamb kynþáttaníðs heldur böðull rasista“ Fótbolti Dæmdur í bann fyrir að fleygja „vatnsbrúsa í smettið á trommara“ Íslenski boltinn Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Enski boltinn Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Körfubolti Áfall fyrir Pólverja Fótbolti „Ætlum að byggja upp til framtíðar“ Handbolti Badmus fer hvergi Körfubolti Tuttugu ár síðan allt stefndi í að „ómennskur“ Rooney yrði hetja Englands Fótbolti Fleiri fréttir Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Hinn eftirsótti Šeško áfram hjá Leipzig Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Fyrrum fyrirliði Liverpool liggur þungt haldinn á spítala Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum Van Gaal hrósar Liverpool fyrir að ráða Slot Shaw skýtur á Ten Hag og læknateymi United: „Ég hefði aldrei átt að spila“ Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“ City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“ Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“ United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Styttist í að Ten Hag fái að vita hvað framtíðin ber í skauti sér Maresca tekinn við hjá Chelsea Ferguson hafi átt leynilegan fund í Lundúnum Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Sjá meira