Sigurganga Watford heldur áfram er liðið hafði betur gegn Tottenham Anton Ingi Leifsson skrifar 2. september 2018 17:00 Watford fagnar marki í dag. Vísir/Getty Watford er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leikina í ensku úrvalsdeildinni eftir 2-1 sigur á Tottenham á Vicarage Road í dag. Tottenham komst yfir með marki er Abdoulaye Doucore skoraði í eigið net en markið kom á 53. mínútu. Leikmenn Watford gáfust þó ekki upp. Troy Deeney jafnaði metin á 69. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði Craig Cathcart sigurmarkið. Lokatölur 2-1 sigur Watford og ótrúleg byrjun þeirra í úrvalsdeildinni þetta árið; fjórir sigrar í fjórum leikjum. Liðið á toppnum ásamt Chelsea og Liverpool. Þetta var fyrsta tap Tottenham í fyrstu fjórum leikjunum en þeir eru með níu stig í fimmta sæti deildarinnar. Enski boltinn