Leiðsögumenn segja Guide to Iceland hafa klúðrað jólum hátt í 40 ferðamanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2018 16:00 Frá Snæfellesnesi í desember. Getty/Patrick Gorski
Finnbogi Þorkell Jónsson og Halldór Kristinn Haraldsson ætla ekki framar að taka að sér verkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland. Þeir segjast sjaldan hafa lent í eins miklu klúðri og í tveggja daga ferð um Snæfellsnesið með 36 ferðamönnum frá Asíu. Það sé sem betur fer ekki í menningu ferðamanna frá þeirri heimsálfu að kvarta. Hefðu ferðamennirnir verið frá Bandaríkjunum eða Bretlandi hefði allt orðið brjálað. Framkvæmdastjóri Guide to Iceland vísar til mannlegra mistaka. Finnbogi segir frá í færslu á Facebook þar sem hann birtir tölvupóst til Guide to Iceland að ferðinni lokinni. Þar rekur hann það sem gekk á í ferðalaginu á aðfangadag og jóladag. Gengur hann svo langt að velta fyrir sér hvort fyrirtækið muni „stúta stærstu atvinnugrein þjóðarinnar“, þ.e. ferðamennskunni.Finnbogi Þorkell Jónsson, leikari og leiðsögumaður.Stútfullir bílar Finnbogi rekur hvernig þeir félagarnir hafi skráð sig í Snæfellsnestúr en tilkynnt á Þorláksmessu að þeir hefðu verið settir á allt annan túr, Suðurstrandartúr sem sé miklu lengri. Þeir hafi afþakkað hann. Eftir pósta fram og til baka hafi þeim verið tjáð að „það væri búið að redda þessu“ fyrir hann. Þau skilaboð hafi gefið tóninn. Í framhaldinu hafi fjöldi fólks verið meiri en þeir hefðu haft upplýsingar um og rétt náð að troða þeim í bílana sem þeir höfðu. Ekki eitt sandkorn til viðbótar hafi komist fyrir. Þá hafi hópurinn verið bókaður í gistingu í Borgarnesi sem passi alls ekki fyrir tveggja daga ferð um Snæfellsnes. „Það detta amk 1-2 stopp út af planinu vegna myrkurs á þessum árstíma. Kúnnar ekki sáttir við það. En við gjörþekkjum svæðið og bættum upp með öðrum stoppum. Við mælum með því að þeir sem skipuleggi túrana prófi að fara í þá sjálf.“Frá Borgarnesi.Vísir/VilhelmJólamat reddað á síðustu stundu Þegar athugað var með fyrrnefnt hótel var tilkynnt að ekkert veitingahús væri opið og hvergi í Borgarnesi. Hótelinu yrði sömuleiðis læst klukkan 23. „Við förum á fullt í að hringja í allt Borgarnes og á endanum vildi svo heppilega til að Kiddi þekkti vertinn á Hótel Hafnarfjalli og hann gat boðið hópunum í jólahlaðborð á 7000 kall. Hins vegar sagðist hann aldrei á 20 ára ferli hafa heyrt um að fyrirtæki væri með 36 manns á ferðinni á aðfangadag og væri ekki búið að plana dinner. Helmingurinn af báðum hópunum kom í dinnerinn en hinn ákvað að vera uppá hóteli með samlokur og snakk af N1 sem það hafði keypt um morgunin og átti að vera nesti daginn eftir. Allsstaðar var lokað.“ Þá vilji ferðalangar sem gisti á hótelum geta slakað á með vínglas, kaffi eða te. Hótelvaktmaðurinn hafi tjáð þeim að Guide to Iceland hefði afþakkað veitingaþjónustu.Um tveggja daga ferð um Snæfellsnes var að ræða.Getty/Patrick Gorski„Excel-fyrirtæki“ Þeir félagar telja fleira til. Ekki hafi verið hugsað fyrir veitingaþjónustu og klósettum við skipulagningu. „Eftir miklar hringingar og vesen komumst við að því að einu veitingastaðurinn og klósettin sem voru opin á Snæfellsnesi var á Rjúkanda á Vegamótum og 24/7 klósettin á Malarrifi. Þannig að ekki var hægt að nálgast veitingar eða heita drykki frá 8:00-16:00 og ekki klósett frá 12-16 í ferðinni.“ Þetta verði að vera í lagi með 36 manna hóp. Á meðal ferðamanna var eldra fólk og unglingsstrákur sem veiktist á leiðinni. „Þetta var disaster fyrir þau.“ Þá hafi ekki verið nægilega vel staðið að bókun í hellaskoðun. Hún verið bókuð á þeim stutta tíma dags þegar birta er í boði auk þess sem aðeins var pantað fyrir 30 manns. Eftir mikla reikistefnu hafi hellaleiðsögumennirnir gefið grænt ljós á að allir fengju að skoða. „... en ítrekuðu að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þetta Excelfyrirtæki klúðrar bókunum.“Þakka fyrir þjóðerni ferðamannanna Leiðsögumennirnir Finnbogi og Halldór Kristinn segja kúnnana hafa spurt hvort ferðir væru alltaf svo illa skipulagðar. Einhverjir ætli að skrifa eða blogga um ferðina. „Við viljum benda á að flestir þessara ferðamanna eru frá Asíu og það þarf ansi mikið til að þau kvarti. Það er ekki í þeirra kúltur. Ef þau hefðu verið Bandaríkjamenn eða Bretar þá hefði allt orðið brjálað. Við björguðum því sem bjargað varð en viljum benda á að bakvið excelið er fólk á ferðalagi, jafnvel að upplifa ævintýri lífsins þannig að þið getið ímyndað ykkur vonbrigðin þegar þau átta sig á að leiðsögumaðurinn er að redda og gera og græja allan tímann hluti sem eiga að vera í lagi.“ Finnbogi segist hafa fengið símtal frá fulltrúa Guide to Iceland. Honum var tilkynnt að hann fengi ekki frekar vinnu hjá fyrirtækinu og sagðist hann vera sáttur við það.Davíð Ólafur Ingimarsson, framkvæmdastjóri Guide to Iceland.„Mannleg mistök“ Davíð Ólafur Ingimarsson, framkvæmdastjóri Guide to Iceland, segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að sextíu manns séu í fullri vinnu hjá fyrirtækinu sem þjónusti ferðafólk og íslensk fyrirtæki á margvíslegan hátt. „Starfsfólk okkar vinnur oft kraftaverk en því miður gerast stundum mannleg mistök. Við hörmum að sjálfsögðu öll mistök sem eiga sér stað, en gerum alltaf okkar besta til að bæta fyrir þau. Í þessu tilfelli hlaut málið farsælan endi þegar ferðafólkið fékk að borða. Við viljum því þakka sérstaklega öllum þeim sem komu að því að leysa þennan vanda.“ Fyrirtækið hagnaðist um 676 milljónir á síðasta ári. Samþykkti stjórnin að greiða 600 milljónir í arð til hluthafa sinna að því er fram kom í Fréttablaðinu í sumar. Stærstu hluthafar í Guide to Iceland eru Ingólfur Abraham Shahin með 55,3 prósenta hlut í gegnum félagið Djengis, Iurie Belegurschi með 18,5 prósent í gegnum Aurora Capital og Xiaochen Tian með 9,2 prósent í gegnum Chenchen. „Við erum stolt af því brautryðjendastarfi sem við höfum unnið, sem hefur skilað sér í hundruðum starfa til íslenskra fyrirtækja og einyrkja, ásamt ómældum skatttekjum í ríkissjóð. Við höldum ótrauð áfram við að skapa ferðamönnum ógleymanlegar minningar um Ísland og að stuðla að atvinnuþróun á landinu öllu," segir Davíð Ólafur.
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Fyrirtækið Guide to Iceland greiðir 600 milljóna króna arð Guide to Iceland sem rekur markaðstorg fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hagnaðist um 676 milljónir króna á síðasta ári. Tekjuvöxtur fyrirtækisins nam 70 prósentum á milli ára. Vinna að því að fara í útrás með hugbúnaðinn. 30. júlí 2018 07:30 Mest lesið Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Samstarf Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira
Fyrirtækið Guide to Iceland greiðir 600 milljóna króna arð Guide to Iceland sem rekur markaðstorg fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hagnaðist um 676 milljónir króna á síðasta ári. Tekjuvöxtur fyrirtækisins nam 70 prósentum á milli ára. Vinna að því að fara í útrás með hugbúnaðinn. 30. júlí 2018 07:30