Þór Akureyri og lífið Eymundur L. Eymundsson skrifar 10. desember 2018 16:30 Sagan er aldrei of oft sögð til að minna á fortíð og gera að opnara og betra samfélagi fyrir alla óháð stöðu og stétt. Íþróttir hafa mikið forvarnargildi og þá skiptir máli að unnið sé vel með sjálfsmyndina og að allir sem hafi áhuga geti stundað óháð getu. Ég deila minni reynslu sem rænir einstaklingum lífgæðum og lífi ef ekkert er að gert hvort sem þú ert í íþróttum eða ekki. Í lagi eftir Bjarna Hafþór ég er Þórsari kemur texti sem mig langar að byrja á. Að vera nýtur þegn á voru landi, er vert að ræða um og fólk að fræða um. Lífið er bræðralag, lifi sá andi. Við lútum höfði í þakkarskuld. Hér liggja gamalgrónar rætur … Í hjarta mínu er ég Þórsari… Nítján ára í 2. flokki Þórs.Þetta á vel við þar sem Þór er félag sem ól mig upp og á ég því margt að þakka. Ég hef eignast marga vini og félaga í Þór sem ég er þakklátur fyrir að fá að vera samferða í mínu ferðalagi gegnum lífið. Ég vona að geti ég gefið eitthvað til baka um nauðsyn þess að standa saman Ég toppaði á mínum knattspyrnuferli árið 1979 og þá 12 ára gamall. Ég var markahæstur í 5. flokki Þórs með 8 mörk og lentum í 2. sæti Íslandsmótsins eftir að hafa tapað úrslitaleik á móti sterku ÍR liði. Ég hélt að ég myndi eiga góða framtíð í boltanum en því miður var feluleikur byrjaður á þessum tíma til að fela vanlíðan. Ég hef verið að fræða um andleg veikindi og vanlíðan vegna þess að ég veit hvaða alvarlegar afleiðingar þær geta haft ef ekkert er að gert. Það á enginn að þurfa skammast sín fyrir að leita sér hjálpar frekar en það væri líkamlegt. Tvítugur með félögunum í Magna Grenivík.Þetta er lífsins alvara þar sem hugurinn er fangelsi niðurbrotina hugsana. Ég glímdi við sjálfsvígshugsanir nær daglega frá 12 ára aldri. Það er sorglegt til þess að vita að við erum að missa 3 til 4 einstaklinga á mánuði á Íslandi fyrir eigin hendi. Þá er það utan við alla þá sem reyna en nýjustu tölur sýna að það séu 500 til 600 einstaklingar á ári. Kvíðaröskunin félagsfælni er það sem ég þekki best til. Hún er 3. algengasta geðröskunin á eftir þunglyndi og alkóhólisma. Það eru á hverjum tíma 5 til 15% einstaklinga sem glíma við félagsfælni.Og má þá reikna með á hverjum tíma að það séu 15.000 til 45.000 þúsund Íslendingar. Alvarlegt þunglyndi leggst á a.m.k. 25% kvenna og 12% karla á einhverjum tímapunkti í lífi þeirra. Á hverjum tíma glíma 1 af hverjum 4 við geðheilsuvanda af einhverjum toga og það gera 25% af öllum Íslendingum. Andleg veikindi og vanlíðan fara ekki í manngreiningarálit. Tólf ára í 5. flokki Þórs.Að vera barn og þroskast Kvíða byrjaði ég að finna fyrir þegar ég byrjaði grunnsskóla. Kvíðinn hafði áhrif á námið og mér gekk erfilega að læra þar sem einbeiting var lítil. Um 12 ára aldur var kvíðinn farinn að há mér mikið og orðinn að félagsfælni þar sem ótti og hræðsla um að gera mistök. Ég var byrjaður að setja upp grímu til að lifa af þar sem ég hafði ekki neina sjálfsmynd,sjálfsvirðingu eða sjálfstraust. Átti auðvelt með að roðna og klökkna að sjálfsvígshugsanir voru komnar og ég skammaðist mín fyrir mína líðan. Svo prófið að setja ykkur í spor barns sem líður svona í dag og hvað mynduð þið að yrði gert til þess að hjálpa ykkur? Það eru nefnilega ansi mörg börn sem líður eins og mér og afleiðingar ef ekkert er að gert strax í æsku geta orðið miklar. Þótt mér hafi ekki liðið vel voru íþróttirnar sem héldu mér gangandi. Á þeim tíma varð maður að harka af sér og kröfurnar voru jafnmiklar og núna að standa sig. Maður mátti ekki sýna að manni liði illa og ætti að rífa sig bara upp og hætta þessu væli. Það segir sig sjálft að birgja vanlíðan og hafa litla einbeitingu og lítið sjálfstraust hefur áhrif á getu og þátttöku í lífinu. Meistarflokkur Þórs eftir sigur á innanhúsmóti. Ég með gleraugu. Margir þekktir og þ.á.m. Halldór Áskelsson fyrrverandi landsliðsmaður.Ég leit út fyrir að fúnkera félagslega, en eftir að ég varð fimmtán sextán ára fór ég aldrei með félögunum í bíó eða neitt svoleiðis. Ég þorði aldrei að fara og þorði aldrei að segja þeim af hverju það var. Ég vissi heldur í rauninni ekki hvað var að mér. Ég réð ekkert við taugakerfið, ég roðnaði og klökknaði í tíma og ótíma og það gerðist bara án þess ég réði nokkru um það. Ég notaði áfengi heilmikið til að slá á líðanina, þegar félagarnir voru að drekka þá gat ég komið, og var oftast búinn að drekka í mig kjark til að komast til þeirra. Ég fór alla leið upp í meistaraflokk hjá Þór en skipti þá yfir til Magna á Grenivík, vegna þess að ég treysti mér ekki lengur til að vera með gömlu félögunum. Samt var það þannig þegar ég ók til Grenivíkur var ég oft búinn að gefa í og ætlaði að keyra fram af en hætti við sem betur fer. Ég var alltaf að flýja og mikil reiði og pirringur sem getur valdið togstreitu í samskiptum. Alltaf þegar ég lagðist til svefns á kvöldin kveið ég fyrir að vakna daginn eftir, kveið fyrir öllum deginum, kveið fyrir að þurfa að hitta annað fólk. Eftir fyrirlestur á aðalfundi Þórs 2016 þar sem mínir gömlu vinir og félagar og fengu beint í æð afhverju ég var alltaf að flýja og afhverju ég var ekki með þeim í Þór.Ég gat ekki ímyndað mér að ég ætti við andleg veikindi að stríða. Ég hélt að ég væri öðruvísi og var viss um að enginn myndi trúa mér ef ég segði frá hvernig mér liði. Ég var viss um að allir myndu dæma mig og gera lítið úr mér.Baktala og hlæja og myndu segja hvað ég væri vitlaus og heimskur.Ég var nógu brotinn fyrir að það hefði ekki verið á bætandi. Svo ég hélt áfram að birgja vanlíðan og vera með grímu. Ég hélt nefnilega að fólk sem væri andlega veikt væri eins og maður sér í bandarískum bíómyndum, lokað inni og helst í spennitreyju. Það voru eiginlega einu skiptin sem ég sá fólk með andleg veikindi. Ég greindist með slitgigt 1994 og er þá 27 ára gamall og þurfti að hætta í boltanum.Ég hélt samt áfram að vera kringum fótboltann og sem liðstjóri hjá Þór og Magna Grenivík.Ég birgði samt alltaf vanlíðan og barst við sjálfan mig á hverjum degi. Ég þurfti hinsvegar að fara í mjaðmaliðaskipti 1998 og aftur sömu megin 2004. Ég varð óvinnufær eftir þá aðgerð þar sem hún tókst ekki nógu vel og má segja að það hafi bjargað mínu lífi. 2. flokkur Þórs 1986.Ég var í verkjaskóla á Kristnesi árið 2005 þar sem ég sá í fyrsta skipti hvað ég hafði glímt við síðan ég var barn.Fékk þá bæklinga um kvíða,félagsfælni og þunglyndi. Þetta reyndust bæklingar um mig og það voru ástæður fyrir minni vanlíðan og það var von. En til þess þyrfti ég að taka grímuna af og fá hjálp. Manneskjan ég er sú sama þótt gríman hafi verið tekin. Þeir sem þekkja mig vita að ég er bara ágætis manneskja og vinur vina minna. Ég hafði tækifæri á að byggja mig upp og öðlast það sjálfstraust sem ég hef þráð síðan ég var barn. Ég þurfti að vinna fyrir því að taka niður grímuna og nýta mér hjálpina með opnum huga. Hvað hef ég gert Ég fékk hjálp strax hjá sálfræðingi á Kristnesi og síðan 3 mánuðir í samtalsmeðferð hjá heimilislækni. Ég fór í meðferð hjá SÁÁ og í Starfsendurhæfingu Norðurlands. Ég þurfti að leita mér hjálpar á geðdeild og hef farið 3 sinnum á geðsvið Reykjalundar. Ég fer reglulega á Heilsustofnun í Hveragerði til að halda skrokknum gangandi og um leið þeirri andlegu. Ég kláraði Ráðgjafaskóla Íslands og var 3 ár í Hugarafli Reykjavík. Ég er einn af stofnendum Grófarinnar sem er geðverndarmiðstöð á Akureyri sem byggir á hugmyndafræði valdeflingar og batamódels. Ég hef opnað mig í fjölmiðlum og verið verkefnisstjóri geðfræðsluteymis Grófarinnar sem hefur farið í fjölda grunn- og framhaldsskóla síðustu ár á norðurlandi og víðsvegar um landið með góðum árangri. Útskrifaðist sem félagsliði vorið 2016 og var að koma úr minni 3 mjaðmaliðaskiptingu sömu megin fyrir 18 mánuðum. Því miður gengur það hægt og þarf að sætta mig við að lifa með verkjum og síþreytu en ég þarf ekki að kvíða hverjum degi og er þáttakandi í lífinu og nýti mína reynslu til góðs. Ég er að gera hluti sem ég hef þráð síðan ég var barn með að nýta mér hjálpina. Ég er ekki fórnarlamb heldur einstaklingur sem gekk í gegnum erfileika en lifði af sem er ekki sjálfgefið. Ég vil nýta mína reynslu til að gera samfélaginu grein fyrir alvarleika andlegra veikinda og vanlíðan. Ég vil gefa öðrum von að einstaklingar geti fengið hjálp sem fyrst en þurfi ekki að birgja vanlíðan með grímu. Tvítugur í meistaraflokki Magna árið 1987.Fordómar og stuðningur í íþróttum Ég veit um leikmenn sem hafa hætt þar sem þeir þorðu ekki að opna sig.Ég veit um leikmenn sem þurftu að yfirgefa sitt lið vegna skilningsleysis og dómhörku eftir að þeir opnuðu sig. Félög hafa misst leikmenn sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Margir einstaklingar með andleg veikindi og vanlíðan eiga erfitt með að leita sér hjálpar vegna eigin fordóma. Gerum þeim það auðveldara fyrir og hlustum og virðum. Hvað gera menn ef þeir meiðast? Jú sjúkraþjálfun.Hvað gera menn ef þeir glíma við andleg veikindi og vanlíðan? Hvað hjálp er í boði? Það sem maður vill sjá er að einstaklingar fái stuðning og það sé óhætt að tala um sína vanlíðan. Ég vona að íþróttamenn framtíðar þurfi ekki að birgja vanlíðan eins og íþróttamenn fortíðar. Berum virðingu fyrir náunganum í leik og starfi. Eymundur L. Eymundsson Ráðgjafi, félagsliði og Þórsari Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið PCOS: Er ódýrara að halda heilsu eða meðhöndla veikindi? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer Skoðun Be Kind - ekki kind Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir ,Perla Magnúsdóttir Skoðun Viðreisn afhjúpar sig endanlega Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Frelsi til sölu Erling Kári Freysson Skoðun Illa verndaðir Íslendingar Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heimalestur – gæðastund en ekki grátur og gnístan tanna Svava Þ. Hjaltalín Skoðun Heimur á heljarþröm? Innflutningur á hatursorðræðu til Íslands! Arna Magnea Danks Skoðun Móðir í Breiðholti hjólar 5.000 kílómetra Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun PCOS: Er ódýrara að halda heilsu eða meðhöndla veikindi? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer skrifar Skoðun Be Kind - ekki kind Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir ,Perla Magnúsdóttir skrifar Skoðun Illa verndaðir Íslendingar Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Viðreisn afhjúpar sig endanlega Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Heimalestur – gæðastund en ekki grátur og gnístan tanna Svava Þ. Hjaltalín skrifar Skoðun Frelsi til sölu Erling Kári Freysson skrifar Skoðun Vangaveltur um íslenskt barnaefni – Hvers vegna skiptir það máli að börn heyri sjálf sig? Tinna Björg Kristinsdóttir,Valdimar Gylfason skrifar Skoðun Móðir í Breiðholti hjólar 5.000 kílómetra Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Viðreisn lætur verkin tala Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sterkara framhaldsskólakerfi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Eru Íslendingar feigir? Olíuvinnsla! Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Ástæðan fyrir því að við þurfum möguleika á dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm? Innflutningur á hatursorðræðu til Íslands! Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal skrifar Skoðun Lýðræðið tekið úr höndum nemenda í Lundarskóla Benedikt Már Þorvaldsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði er mannréttindamál Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Stuðningsyfirlýsing forstöðumanna Sólheima Elfa Björk Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Sniðganga fyrir Palestínu Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hrönn G. Guðmundsdóttir,Katrín Björg Þórisdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir,Yvonne Höller skrifar Skoðun Tími skyndilausna á húsnæðismarkaði er liðinn Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Lýðræði í mótvindi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Orka Breiðafjarðar Ingólfur Hermannsson skrifar Skoðun Axarvegur styttir leiðina milli Suðurlands og Egilsstaða um tæpa 70 km Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin svíkur verkafólk: Ætlar að leggja niður jöfnunarframlagið Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Greinin vex í þá átt sem hún er beygð: Um umdeildar sameiningarþreifingar HA og Bifrastar Guðmundur Oddsson skrifar Skoðun Eigum við samleið Ragnheiður Ríkharðsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorð Palestínu Guðný Gústafsdóttir skrifar Sjá meira
Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun
Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer skrifar
Skoðun Vangaveltur um íslenskt barnaefni – Hvers vegna skiptir það máli að börn heyri sjálf sig? Tinna Björg Kristinsdóttir,Valdimar Gylfason skrifar
Skoðun Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Hanna Katrín Friðriksson skrifar
Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal skrifar
Skoðun Sniðganga fyrir Palestínu Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hrönn G. Guðmundsdóttir,Katrín Björg Þórisdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir,Yvonne Höller skrifar
Skoðun Axarvegur styttir leiðina milli Suðurlands og Egilsstaða um tæpa 70 km Kristján Ingimarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin svíkur verkafólk: Ætlar að leggja niður jöfnunarframlagið Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson skrifar
Skoðun Greinin vex í þá átt sem hún er beygð: Um umdeildar sameiningarþreifingar HA og Bifrastar Guðmundur Oddsson skrifar
Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson Skoðun