Viðskipti innlent

HB Grandi fer yfir kvótaþakið með kaupunum á Ögurvík

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda. fréttablaðið/anton brink
Í kjölfar kaupa HB Granda á Ögurvík, sem Samkeppniseftirlitið samþykkti í síðustu viku, ræður fyrrnefnda félagið yfir 12,4 prósentum af heildarkvótanum, talið í þorskígildum, og er þannig komið yfir leyfilegt hámark sem er 12 prósent. Félagið fer með kaupunum einnig yfir 20 prósenta leyfilega hámarkið í ufsa.

Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna kaupanna sem birt var á vef eftirlitsins á mánudag.

Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða ber Fiskistofu að tilkynna fyrirtækjum ef aflaheimildir í þeirra eigu fara yfir kvótaþakið og er viðkomandi fyrirtækjum þá veittur sex mánaða frestur til þess að koma aflahlutdeild sinni niður fyrir mörkin.

Samkeppniseftirlitið lagði eins og áður sagði blessun sína yfir kaup HB Granda á Ögurvík með þeim rökum að samanlögð markaðshlutdeild félaganna væri einungis um 12 prósent.

Eftirlitið bendir þó á að það hafi jafnframt til skoðunar hvort kaup Útgerðarfélags Reykjavíkur, áður Brims, á ríflega þriðjungshlut í HB Granda, sem gengið var frá í apríl síðastliðnum, hafi falið í sér tilkynningarskyldan samruna í skilningi samkeppnislaga. Verði það niðurstaðan muni eftirlitið meta þau kaup sérstaklega og þá með hliðsjón af kaupum HB Granda á Ögurvík.

„Fyrir liggur að með slíkum samruna, sé um samruna að ræða, mun sameinað félag fara enn frekar yfir leyfileg hámörk í ufsa og heildarhlutfalli sem og einnig í karfa og grálúðu,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Kaupverð HB Granda á Ögurvík er 12,3 milljarðar króna en seljandi er Útgerðarfélag Reykjavíkur, í eigu Guðmundar Kristjánssonar, sem er jafnframt forstjóri og stærsti eigandi HB Granda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×