Óþreyju gætir meðal leigusala WOW air Hörður Ingi Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifar 28. nóvember 2018 06:00 Ekki liggur fyrir hvort verði af yfirtöku Icelandair á WOW air. Kaupin eru háð fjölmörgum skilyrðum, svo sem samþykki hluthafafundar Icelandair og Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Fréttablaðið/Ernir
Enn eru mörg stór mál óleyst í viðræðum Icelandair Group og WOW air sem leysa þarf úr til þess að yfirtaka fyrrnefnda félagsins á því síðarnefnda gangi eftir, samkvæmt heimildum Markaðarins. Auk þess að fá samþykki hluthafafundar Icelandair og Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu í áreiðanleikakönnun þurfa forsvarsmenn flugfélaganna að leita lausna í hinum ýmsu deilumálum sem út af standa. Þannig hefur ekki enn fengist niðurstaða í það á samningafundum stjórnenda félaganna hvort krafa Icelandair um að forgangsréttarákvæði í samningum félagsins við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) muni ekki gilda hjá lággjaldaflugfélaginu í kjölfar kaupanna nái þau fram að ganga. Félagsmenn í FÍA sem starfa hjá Icelandair hafa forgang í flugi á flugvélum í eigu félagsins og dótturfélaga. Með kaupum Icelandair á WOW air yrðu því flugmenn síðarnefnda félagsins, að öðru óbreyttu, á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Myndi þannig launakostnaður lággjaldaflugfélagsins hækka umtalsvert.Icelandair greiði 90 prósent Þá herma heimildir Markaðarins að mikil óvissa sé um þau áform að greiða eigendum skuldabréfa WOW air höfuðstól bréfa sinna á gjalddaga, eftir þrjú ár, auk þóknunar sem nemur 20 prósentum af höfuðstólnum gegn því að kaupréttir þeirra í félaginu verði felldir niður. Í bréfi WOW air til skuldabréfaeigendanna, dagsettu 9. nóvember, kom fram að það væri skilyrði þess að yfirtaka Icelandair Group á félaginu nái fram að ganga að kaupréttirnir falli niður. Viðmælandi Markaðarins, sem þekkir vel til stöðu mála, segir að gert hafi verið ráð fyrir að Icelandair standi undir 90 prósentum af greiðslunni og Skúli Mogensen, forstjóri og eini eigandi WOW air, greiði það sem upp á vantar með þeim hlutabréfum sem hann kann að eignast í sameinuðu félagi. Niðurstaða áreiðanleikakönnunar mun leiða í ljós hve stór hlutur það verður en hann getur rokkað á bilinu 1,8 til 6,6 prósent. Í tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í gærmorgun kom fram að í kjölfar hluthafafundar sem boðaður er vegna kaupanna á WOW air á föstudag yrðu kynntar aðgerðir til þess að styrkja efnahagsreikning félagsins enn frekar. Um leið yrði lögð fram tillaga að breytingum á skilmálum bréfanna sem miðaði að því að ná fram „langtímalausn“ fyrir félagið og skuldabréfaeigendurna.Skoðað sölu lendingarstæða Eins og Skúli rekur í bréfi sem hann skrifaði eigendum skuldabréfa flugfélagsins í gær hafa ýmsir þættir í rekstri og umhverfi félagsins þróast til verri vegar undanfarið sem hafi gert það að verkum að félagið þurfi nauðsynlega á fjármögnun að halda. Er það einkum bráður lausafjárvandi sem félagið hefur glímt við. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla sem eru í rekstri WOW air. Óttast leigusalarnir, sem eru aðallega félög sem sérhæfa sig í fjármögnun og útleigu flugvéla, að samruni flugfélagsins og Icelandair gangi ekki eftir og að WOW air takist ekki að standa í skilum um næstu mánaðamót – eftir að félagið hefur greitt starfsfólki sínu laun – með greiðslu afborgana. Eru leigusalarnir sagðir tilbúnir til að grípa til aðgerða ef það verður raunin, samkvæmt heimildum Markaðarins. Skúli tiltók sérstaklega í bréfinu til skuldabréfaeigenda að umræddir leigusalar (e. lessors) fylgdust náið með stöðu félagsins og krefðust nú strangari greiðsluskilmála en áður með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á sjóðstreymi félagsins. Í bréfinu greindi Skúli einnig frá því að flugfélagið hefði verið nálægt því að ganga frá samningi um sölu og endurleigu á flugvélum sem hefði tryggt félaginu innspýtingu upp á 25 milljónir dala, jafnvirði um þriggja milljarða króna. Hins vegar hefði verið hætt við þau áform. Flugfélagið leitar um þessar mundir allra leiða til þess að bæta lausafjárstöðu sína og kannar í því sambandi ýmsa kosti. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur félagið meðal annars skoðað þann möguleika að selja lendingarstæði sín á Gatwick-flugvellinum í nágrenni Lundúna. Eru stæðin með þeim verðmætustu í eigu WOW air en ekki liggur þó fyrir hvað félagið getur fengið fyrir þau.Gæti þýtt 3 prósenta samdrátt Eins og greint var frá í Markaðinum í síðasta mánuði gæti gjaldþrot WOW air þýtt að landsframleiðsla drægist saman um tvö til þrjú prósent og gengi krónunnar veiktist um allt að 13 prósent á næsta ári samkvæmt sviðsmyndagreiningu sem stjórnvöld unnu í lok sumars vegna mögulegra áfalla í rekstri flugfélagsins. Í grunnsviðsmynd greiningarinnar var gert ráð fyrir því að fall WOW air gæti leitt til þess að útflutningur drægist saman um tíu prósent á næsta ári, verðbólga hækkaði á sama ári um þrjú prósentustig og um 1.400 manns bættust á atvinnuleysisskrá.Eftirlitið skoðar hvort sölutilraunir séu fullreyndar Ummæli Skúla Mogensen, forstjóra og eina eiganda WOW air, um að forsvarsmenn flugfélagsins eigi í viðræðum við aðra fjárfesta en Icelandair Group um mögulega aðkomu að félaginu gætu dregið dilk á eftir sér. Þannig munu ummælin, sem komu fram í tölvupósti sem Skúli skrifaði starfsmönnum WOW air á mánudag, torvelda Icelandair og WOW air að sannfæra Samkeppniseftirlitið um að heimila beri kaupin á grundvelli reglunnar um félag á fallanda fæti. Til þess að samkeppnisyfirvöld fallist á að beita reglunni þurfa félögin að sýna fram á, svo hafið sé yfir allan vafa, að engir raunhæfir möguleikar hafi verið á annarri sölu WOW air en til Icelandair Group. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur Samkeppniseftirlitið nú til skoðunar hvort tilraunir til þess að selja WOW air til annarra en Icelandair Group hafi verið fullreyndar. Á fundum fulltrúa flugfélaganna með Samkeppniseftirlitinu í lok síðustu viku gerði eftirlitið athugasemdir við málatilbúnað félaganna að þessu leyti, eftir því sem blaðið kemst næst, en ein athugasemdin sneri að því að Skúli hefði aldrei sett WOW air í formlegt söluferli.
Birtist í Fréttablaðinu Samkeppnismál WOW Air Tengdar fréttir Viðskipti með bréf í Icelandair stöðvuð Kauphöllin hefur stöðvað öll viðskipti með bréf í flugfélaginu Icelandair. Hvorki er hægt að kaupa né selja bréf í flugfélaginu af þeim sökum. 26. nóvember 2018 10:50 Skúli lagði 770 milljónir til WOW Fimm og hálf milljón evra, af þeim 60 sem WOW Air tryggði sér með skuldabréfaútboði flugfélagsins í september, kom úr vasa forstjórans. 27. nóvember 2018 13:35 WOW losar sig við fjórar vélar WOW Air mun fækka í flota sínum um fjórar flugvélar, tvær Airbus A320 og tvær Airbus A330 27. nóvember 2018 16:31 Stjórnarformaður Icelandair: „Erum bara að vinna þessa vinnu af heilindum“ Fullyrt að póstur Skúla Mogensen hafi valdið titringi innan Icelandair. 27. nóvember 2018 09:01 Óvissa um kaup Icelandair á WOW air Töluverð óvissa er hvort verður af kaupum Icelandair á WOW air en forstjóri WOW hefur lýst yfir að fleiri en Icelandair komi til greina sem kaupendur að félaginu. 27. nóvember 2018 18:51 Mest lesið Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Sjá meira
Viðskipti með bréf í Icelandair stöðvuð Kauphöllin hefur stöðvað öll viðskipti með bréf í flugfélaginu Icelandair. Hvorki er hægt að kaupa né selja bréf í flugfélaginu af þeim sökum. 26. nóvember 2018 10:50
Skúli lagði 770 milljónir til WOW Fimm og hálf milljón evra, af þeim 60 sem WOW Air tryggði sér með skuldabréfaútboði flugfélagsins í september, kom úr vasa forstjórans. 27. nóvember 2018 13:35
WOW losar sig við fjórar vélar WOW Air mun fækka í flota sínum um fjórar flugvélar, tvær Airbus A320 og tvær Airbus A330 27. nóvember 2018 16:31
Stjórnarformaður Icelandair: „Erum bara að vinna þessa vinnu af heilindum“ Fullyrt að póstur Skúla Mogensen hafi valdið titringi innan Icelandair. 27. nóvember 2018 09:01
Óvissa um kaup Icelandair á WOW air Töluverð óvissa er hvort verður af kaupum Icelandair á WOW air en forstjóri WOW hefur lýst yfir að fleiri en Icelandair komi til greina sem kaupendur að félaginu. 27. nóvember 2018 18:51