Viðskipti innlent

Mikilvægt að eyða óvissu því WOW air flytur fjóra af hverjum tíu farþegum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Á þessu ári hefur WOW air flutt fjóra af hverjum tíu farþegum sem koma til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Á þessu ári hefur WOW air flutt fjóra af hverjum tíu farþegum sem koma til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll. vísir/vilhelm
Airport Associates sem þjónustar WOW air sagði upp 237 starfsmönnum í dag en það er nær helmingur starfsfólks fyrirtækisins. Forstjórinn segir það varúðarráðstöfun. Hagfræðingar í greiningardeildum bankanna segja að það sé mikilvægt að eyða óvissu um framtíð WOW air sem fyrst.

„Við erum fyrst og fremst að grípa til einhverra aðgerða ef allt fer á versta veg á þessum íslenska flugmarkaði. Stærsti viðskiptavinur okkar er WOW air og félagið hefur verið mikið í kastljósinu. Það gekk ekki eftir þessi sala til Icelandair og það er komin upp meiri óvissa,“ segir Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates. Sigþór segir að uppsögn starfsmannanna sé varúðarráðstöfun og uppsagnirnar verði dregnar til baka ef það tekst að tryggja fjármögnun WOW air með öðrum hætti, til dæmis með aðkomu nýs aðila að félaginu.

WOW air flytur fjóra af hverjum tíu flugfarþegum sem koma til landsins. Icelandair flytur aðra fjóra og á þriðja tug erlendra flugfélaga flytja tvo. Af þessari ástæðu er morgunljóst að íslensk ferðaþjónusta á mikið undir velgengni WOW air. Fall félagsins myndi hafa keðjuverkandi áhrif á rekstur hótela og gistihúsa, veitingastaða og rútu- og annarra ferðaþjónustufyrirtækja. Í sviðsmyndagreiningu sem samráðshópur stjórnvalda lét vinna í lok sumars kemur fram að landsframleiðsla myndi dragast saman um tvö til þrjú prósent, útflutningur myndi dragast saman um tíu prósent og gengi krónunnar myndi veikjast um 13 prósent ef WOW air færi í þrot. 

Mikilvægi WOW air endurspeglast ágætlega því að í fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá 7. nóvember er á þremur stöðum fjallað um WOW air og óvissu um rekstrarhorfur flugfélagsins Þannig hafði óvissan um WOW air neikvæð áhrif á verðbólguvæntingar og ýtti undir veikingu á gengi íslensku krónunnar fyrr á þessu ári.

Elvar Ingi Möller, hagfræðingur í greiningardeild Arion banka, segir brýnt að eyða óvissu um WOW air sem fyrst. 

„Við erum búin að vera með þetta hangandi yfir okkur í íslensku efnahagslífi í þrjá mánuði. Óvissa er alltaf slæm og það er orðið mjög mikilvægt mál að við förum að fá einhverja vissu um það hvernig þetta mál þróast eða einhvern endi í þetta mál,“ segir Elvar. 

Sveinn Þórarinssin hagfræðingur í hagfræðideild Landsbankans segir ástæðulaust að teikna upp of dökka mynd af stöðunni þótt allt fari á versta veg hjá WOW air. 

„Ef að Ísland er áhugaverður kostur fyrir erlenda ferðamenn þá kemur einhver annar og tekur upp slakann. Það er því kannski alveg óþarfi að vera að mála upp of svarta mynd. Þetta kemur allt í ljós. Ef það er eftirspurn hjá ferðamönnum þá finnst manni líklegt að einhver flugfélög komi og fylli upp í skarðið og áhrifin verði minni en hversu mikil áhrifin verði (til skamms tíma) er ómögulegt að spá fyrir um,“ segir Sveinn. 


Tengdar fréttir

Óþreyju gætir meðal leigusala WOW air

Mörg mál standa enn út af í viðræðum Icelandair og WOW air. Stjórnendur Ice­landair vilja ekki að flugmenn WOW air verði á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla í rekstri WOW air.

„Áhætta við kaupin var meiri en við gerðum ráð fyrir“

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir að stjórn og stjórnendur félagsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að áhætta við kaup Icelandair Group á WOW air hafi verið meiri en gert hafi verið ráð fyrir. Ákvörðun um að falla frá samruna var tekin eftir að niðurstöður úr áreiðanleikakönnun Deloitte lágu fyrir.

Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð

Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×