Gylfi byrjaði er Everton og Huddersfield skildu jöfn Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 1. september 2018 15:45 Gylfi í baráttunni í dag Vísir/Getty Everton og Huddersfield skildu jöfn í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en leiknum lauk nú fyrir skömmu. Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton en honum var skipt af velli á 76. mínútu. Philip Billing kom Huddersfield yfir á 33. mínútu leiksins, þvert gegn gangi leiksins en Everton var betri aðilinn í leiknum. Huddersfield var hins vegar ekki lengi í forystu, því Dominic Calvert-Lewin jafnaði leikinn með góðum skalla eftir fyrirgjöf Lucas Digne. Fleiri urðu mörkin ekki og þurfa liðin því að sætta sig við eitt stig. Everton er því enn taplaust en þeir hafa gert þrjú jafntefli. Huddersfield var að ná í sitt annað stig í vetur og er komið úr fallsæti. Enski boltinn