City aftur á sigurbraut en vandræði Newcastle halda áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 1. september 2018 18:30 Walker fagnar sigurmarkinu. Vísir/Getty Manchester City er aftur komið á sigurbraut eftir 2-1 sigur á Newcastle United á heimavelli í dag. Eftir jafntefli í síðustu umferð gegn Wolves á útivelli var sigurinn í dag afar mikilvægur fyrir City. Raheem Sterling kom Man. City yfir á áttundu mínútu en DeAndre Yedlin jafnaði metin á 30. mínútu. Annar leikurinn í röð sem Yedlin skorar. Sigurmarkið kom úr nokkuð óvæntri átt en Kyle Walker skoraði sigurmarkið á 52. mínútu. Sergio Aguero lagði upp sigurmarkið. Lokatölur 2-1. City er í þriðja sætinu með tíu stig en Newcastle er í átjánda sætinu með eitt stig eftir fjóra leiki. Enski boltinn
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti