Sumar senur tóku á Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 25. ágúst 2018 09:24 Elín Sif sýnir stjörnutakta í Lof mér að falla. Hún kom oft heim eftir langa daga ansi þreytt. Fréttablaðið/Þórsteinn
Yfirhöfuð var erfitt að setja sig inn í karakterinn, Magneu. Það var meðal annars rakað af mér hárið og maður fær þessi rosalegu gervi þannig að allt verður svo raunverulegt. Ég kom oft heim eftir tökudaga alveg búin á því andlega og líkamlega,“ segir Elín Sif Halldórsdóttir sem leikur Magneu í kvikmynd Baldvins Z, Lof mér að falla. Magnea er 15 ára og kynnist hinni 18 ára Stellu og úr verður ferðalag sem oft er erfitt að horfa á. Elín segir að hún hafi ekki verið viss í fyrstu hvernig hún ætlaði að tækla hlutverkið. „Magnea á að vera ég og þú. Þessi klára stelpa með sterkt bakland sem samt leiðist út í heim fíknarinnar. Henni gengur vel í skólanum og hún á foreldra sem elska hana en hana vantar eitthvað. Hún er bara að reyna að finna sig eins og flestir 15 ára krakkar og er í raun óheppin að kynnast Stellu. Í rauninni er Magnea eðlileg og það var áhersla Baldvins að gera hana nánast að dóttur áhorfandans. Af því að þannig er raunveruleikinn – það getur hver sem er lent í neyslu,“ segir Elín.Sumar senurnar sem Elín lék í voru ansi krefjandi. Hún ætlar að einbeita sér að tónlistinni en hún hefur þegar verið áberandi á öldum útvarpsins.Myndin veitir innsýn í hinn ömurlega heim fíkniefna og Elín bendir á að öll atriðin eigi sér stoð í raunveruleikanum. „Það er gott fyrir alla að sjá veruleikann berum augum. Þetta hefur allt gerst sem þarna er sýnt. Ég held að það sé mikilvægt að opna augu fólks og gera eitthvað í þessu því það er ótrúlegur fjöldi búinn að deyja í ár vegna fíknarinnar,“ segir hún, en þrjátíu lyfjatengd andlát eru til skoðunar hjá Embætti landlæknis. Þetta er fyrsta stóra hlutverk Elínar í kvikmyndaheiminum en hún stefnir frekar að frama í tónlistinni þar sem hún hefur þegar haslað sér völl. Sumarslagarinn Make You Feel Better hefur fengið fínar viðtökur í sumar. „Lagið fjallar um að vera ekki alveg í essinu sínu og vera að efast um sjálfan sig. Að segja bara fokk it, áfram veginn og kýldu á það sem þig langar að gera.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Hugsar vel um sig til að vera aðlaðandi fyrir Línu Makamál Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Lífið Fleiri fréttir Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira