Ferðalangar varaðir við hvassviðri víða um land í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. ágúst 2018 07:25 Mestu hviðurnar gætu orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Vísir/Andri Marinó
Hvasst verður víða á landinu í dag en búast má við vindi um 15,-18 m/s, og hviðum um 25 m/s, á sunnanverðu Snæfellsnesi, með Suðausturströndinni og á heiðum norðvestan- og vestanlands. Eru ökumenn bifreiða sem taka á sig mikinn vind því beðnir að sýna varkárni, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Þá er búist við dálítilli rigningu suðaustanlands og einnig þykknar upp og fer að rigna víða um norðvanvert landið með deginum. Annars staðar á landinu verður skýjað með köflum og víða bjartviðri suðvestantil. Hiti 7 til 13 stig en allt að 18 stig sunnanlands. Í nótt gengur í norðan 15-23 m/s um austanvert landið, hvassast á Suðausturlandi austan Öræfajökuls og á annesjum á Austfjörðum, með talsverðri eða mikilli rigninu á Austurlandi, á hálendinu norðan Vatnajökuls og á norðanverðum Austfjörðum. Á Suðausturlandi verður úrkomulítið. Hægari vindur verður um landið vestanvert, 10-15 m/s, og dálítil rigning norðanlands og á Vestfjörðum en þurrt og bjart suðvestantil. Síðdegis á morgun dregur úr vindi á Austfjörðum en hvessir í 15-20 m/s á sunnanverðu hálendinu, vestan Öræfajöklus og undir Eyjafjöllum.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á þriðjudag: Norðanátt, víða 8-15 m/s en 15-20 austast. Rigning á Norðurlandi og talsverð eða mikil rigning á Austurlandi, skýjað með köflum um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 9 stig fyrir norðan, en 9 til 16 stig syðra.Á miðvikudag: Norðvestlæg átt, 3-10 m/s 10-13 m/s við NA-ströndina. Rigning norðaustantil og styttir upp með degium, en skýjað með köflum annars staðar. Hiti 4 til 7 stig á norðanverðu landinu, en annars 7 til 14 stig og hlýjast sunnanlands.Á fimmtudag: Norðvestlæg átt, 3-8 og skyjað með köflum en víða bjartviðri syðra. Hiti 6 til 9 stig norðaustantil, en 9 til 15 stig sunnan- og vestanlands.Á föstudag og laugardag: Hæg suðlæg átt og bjart með köflum. Hiti 8 til 15 stig, svalast við norður- og austurströndina.Á sunnudag: Fremur hæg suðvestlæg átt og víða skýjað vestantil á landinu en bjartviðri eystra. Hiti 10 til 18 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi.
Veður Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira