Þáði laun án vinnu í áratug eftir að skrifborðið hans var fært Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 11. júlí 2018 19:17 Recio segist hafa unnið að heiman, hann hafi þrælað alla daga. Samt gat hann engar skýringar gefið á því nákvæmlega hvað hann var að gera. Antena 3 TV
Spænskur ríkisstarfsmaður að nafni Carles Recio hefur orðið uppvís að því að þiggja laun í rúman áratug án þess að vinna eitt handtak. Recio starfaði sem skjalavörður fyrir héraðsstjórn Valencia. Nýlega sátu kollegar hans að spjalli þegar einhver minntist á að Recio sæist aldrei á skrifstofunni yfir daginn. Raunar hefði enginn orðið var við hann skilaði af sér neinu vinnuframlagi frá því að hann hóf störf fyrir meira en tíu árum. Recio mætti samviskusamlega klukkan átta á hverjum morgni og stimplaði sig út klukkan fjögur á daginn eins og hann átti að gera. Eina vandamálið var að í millitíðinni var hann víðsfjarri vinnustaðnum. Recio gaf margvíslegar en loðnar skýringar á fjarveru sinni þegar yfirmenn fóru loksins að veita máli hans athygli. Fullyrti Recio að hann hefði unnið að heiman síðustu ár. Sagðist hann þræla alla daga og sér félli aldrei verk úr hendi, þrátt fyrir að vera ekki endilega á skrifstofunni. Samt gat Recio ekki skýrt nákvæmlega hvað hann hefði verið að gera öll þessi ár eða hverju sú „vinna“ átti að hafa skilað. Þegar sérstök rannsóknarnefnd var skipuð til að fara í saumana á málinu var Recio inntur eftir frekar skýringum og sagðist hann þá aðeins hafa verið fjarverandi vegna þess að einhver fjarlægði skrifborðið hans sameiginlegri skrifstofu í flutningum fyrir nokkrum árum. Ekki væri hægt að ætlast til að hann ynni skrifstofuvinnu án skrifborðs. Rannsóknarnefndin gagnrýnir Recio harðlega í skýrslu sinni en segir héraðsstjórnina einnig bera vissa ábyrgð. Svo virðist sem skrifborð Recio hafi vissulega verið fjarlægt á sínum tíma án þess að honum hafi verið úthlutað nýrri vinnuaðstöðu. Hann hafi hins vegar nýtt sér mistökin með því að láta engan vita og stimpla sig inn og út á kvöldin án þess að vinna handtak. Fyrir þetta þáði Recio rúmlega 580 þúsund íslenskra króna á mánuði í meira en tíu ár. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að svo svívirðileg framkoma ætti ekki að vera möguleg, það hafi verið vítavert áhuga- og eftirtektarleysi yfirmanna sem gerði Recio kleift að komast upp með allt saman. Jorge Rodriguez, forseti héraðsstjórnarinnar í Valencia, sagði af sér í síðasta mánuði vegna ótengdra spillingarmála.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira