Guterres til Eþíópíu í kjölfar friðarsamkomulags Atli Ísleifsson skrifar 9. júlí 2018 11:15 Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, tók við embætti forsætisráðherra landsins í apríl. Vísir/Getty
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er nú á leiðinni til Eþíópíu, daginn eftir undirritun sögulegs friðarsamkomulags stjórnvalda í Eþíópíu og Erítreu. Guterres hyggst funda með Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, í höfuðborginni Addis Abeba í kvöld. Ahmed var enn staddur í Asmara, höfuðborg Erítreu, í morgun þar sem hann og Isaias Afwerki Erítreuforseti undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um frið og vinskap ríkjanna. Harðar deilur hafa staðið milli ríkjanna síðustu tuttugu árin og skal nú stefnt að hefðbundnu stjórnmálasambandi og opnun landamæra. Leiðtogarnir greindu frá því í gær að byrjað verði að fljúga milli landanna, hafnir skulu opnaðar, að fólk verði gert kleift að ferðast milli landanna og að sendiráð skuli opnuð. Deilur ríkjanna má einna helst rekja til stríðsins á árunum 1998 til 2000 þar sem deilt var um landamæri ríkjanna. Um 80 þúsund manns fórust í stríðinu. Abiy Ahmed tók við embætti forsætisráðherra Eþíópíu í apríl síðastliðinn.
Eritrea Eþíópía Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira