Utah jafnaði gegn Houston eftir frábæra troðslu Mitchell Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. maí 2018 07:13 Mitchell í baráttunni í leiknum í kvöld vísir/getty
Utah Jazz jafnaði undanúrslitarimmuna við Houston Rockets með átta stiga sigri í Houston í nótt. Joe Ingles fór fyrir gestunum frá Utan með 27 stig. Donovan Mitchell átti þó augnablik leiksins þegar hann tók sitt eigið frákast og tróð því í körfuna með annari hendi. Atvikið átti sér stað þegar Jazz var með fjögurra stiga forystu í fjórða leikhluta og það kveikti í liðsfélögum hans sem sigldu heim 116-108 sigri. „Ég bara var í loftinu með boltanum, svo afhverju ekki að troða honum niður?“ sagði Mitchell á blaðamannafundi eftir leikinn. Hann skoraði 17 stig og gaf 11 stoðsendingar. Utah komst í tíu stiga forystu seint í fyrsta leikhluta og hélt áfram að síga fram úr í upphafi annars leikhluta og var staðan orðin 56-37 fyrir gestina um hann miðjan. Þá vöknuðu heimamenn í Houston aðeins til lífsins og löguðu stöðuna niður í 64-55 fyrir hálfleik. Houston byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og var orðið jafnt eftir fjórar mínútur. Eftir það var leikurinn jafn þar til Jazz komst fram úr aftur undir lokinn og hélt þeirri forystu og jafnaði einvígið í 1-1. James Harden posts 32 PTS, 11 AST, 6 REB for the @HoustonRockets at home in Game 2. #Rockets#NBAPlayoffspic.twitter.com/8XTnmnYHQT — NBA (@NBA) May 3, 2018Jae Crowder (15) & Alec Burks (17) combine for 32 PTS off the bench to propel @utahjazz in Game 2 on the road! #TakeNote#NBAPlayoffspic.twitter.com/m0aQS1nkAp — NBA (@NBA) May 3, 2018
NBA Mest lesið Sleikti sólina á snekkju en þurfti svo að drífa sig á EM Fótbolti Leik lokið: Grindavík - Valur | Valskonur í undanúrslit eftir sex marka sigur Íslenski boltinn „Ég er ekki fórnarlamb kynþáttaníðs heldur böðull rasista“ Fótbolti Dæmdur í bann fyrir að fleygja „vatnsbrúsa í smettið á trommara“ Íslenski boltinn Hættur að spá fyrir um þjálfaramál Man United Enski boltinn Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Körfubolti Áfall fyrir Pólverja Fótbolti „Ætlum að byggja upp til framtíðar“ Handbolti Badmus fer hvergi Körfubolti Tuttugu ár síðan allt stefndi í að „ómennskur“ Rooney yrði hetja Englands Fótbolti Fleiri fréttir Badmus fer hvergi WNBA-deildin að slá öll met Neitaði rúmlega átta milljörðum frá Lakers Aftur til Milwaukee eftir brottreksturinn frá Lakers Clark ekki valin í landsliðið: „Þeir vöktu skrímslið“ Kyrie Irving leyfir Luka Doncic ekki að axla ábyrgð á tapinu Mavericks dauðmóðir og Celtics taka tveggja leikja forystu Blása til styrktarleiks í minningu Bjarka Elvar Már áfram í Grikklandi en fer í nýtt félag Friðrik tekur við keflinu í Keflavík Jóhann Árni til Hattar Grindvíkingar sækja Bandaríkjamann norður og Mortensen framlengir Boston tók forystuna í úrslitunum með öruggum sigri Porzingis klár í kvöld og spenntur fyrir úrslitaeinvígi gegn gömlu félögunum Martin ekki meira með á tímabilinu en Alba Berlin komst í úrslit Valur byrjað að styrkja sig fyrir næstu leiktíð Lakers vill fá tvöfaldan háskólameistara sem þjálfara Ein leið til að verjast Kyrie Irving: „Biðja“ Skyggnst bak við tjöldin á Stöð 2 Sport: Rafmagnið sló út í úrslitaeinvígi Subway deildarinnar „Verð að prófa þessa geðveiki áður en ég hætti“ Spilaði í NBA en mun nú keppa í strandblaki á Ólympíuleikunum Magnaður Martin þegar Alba Berlín tryggði sér oddaleik Tröllvaxinn tólf ára leikmaður nýjasta undrabarn Barcelona Carmelo Anthony uppfyllir drauma sína um að eiga körfuboltalið Lögmál leiksins: Who he play for? Hræðilegur endir hjá Martin og félögum og útlitið svart Charles Barkley og fleiri hneyksluð yfir ljótum brotum á Caitlin Clark Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Fotis og Nat-vélin saman undir körfunni hjá Hamri næsta vetur Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Sjá meira