Sakar háttsettan embættismann SÞ um kynferðislegt ofbeldi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. mars 2018 22:53 Luiz Loures er einn af aðstoðarframkvæmdastjórum SÞ. Vísir/Getty
Martina Brostrom, sem starfar sem ráðgjafi hjá UNAIDS, hefur sakað einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Sameinuðu þjóðanna um að hafa káfað á henni í lyftu, þvingað hana til að kyssa sig og reynt að draga hana inn á hótelherbergi. Brostrom greinir frá þessu í viðtali við CNN þar sem hún segir að Luiz Loures, sem einnig er aðstoðarframkvæmdastjóri UNAIDS, sameiginlegrar áætlunar Sameinuðu þjóðanna gegn alnæmi, hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi. „Ég grátbað hann um að hætta og ég var farinn að undurbúa mig að ég kæmist ekki úr lyftunni,“ sagði Brostrom í viðtali við CNN. Hún segir að henni hafi verið boðið stöðuhækkun ef hún samþykkti afsökunarbeiðni af hálfu Loures. Þá segir hún einnig að Sameinuðu þjóðirnar hafi ekki tekið ásakanir hennar alvarlega. Loures neitar sök. Hann segist hafa tekið fullan þátt í rannsókn Sameinuðu þjóðanna á ásökunum Brostrom. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að ásakanir hennar ættu ekki við rök að styðjast. Brostrom segir hins vegar að rannsóknin hafi ekki verið nægilega vel framkvæmd. Loures mun hætta störfum fyrir Sameinuðu þjóðirnar í vikunni þegar samningur hans rennur út. Talsmaður SÞ segir að það hafi verið ákvörðun hans að láta af störfum og talsmaður UNAIDS segir að rannsóknin hafi verið eðlileg og að Brostrom sé velkomið að áfrýja niðurstöðu hennar. Brostrom er þriðja konan sem sakað hefur Loures um kynferðislega áreitni eða ofbeldi.
MeToo Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira