Fifth Harmony með tónleika í Laugardalshöll Stefán Árni Pálsson skrifar 5. mars 2018 10:15 Koma fram 16. maí.
Bandaríska stúlknahljómsveitin heimsfræga Fifth Harmony er á leið til Íslands og heldur tónleika í Laugardalshöll miðvikudaginn 16. maí en þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live. Hljómsveitin var stofnuð árið 2012 í þættinum X-Factor í Bandaríkjunum. Hljómsveitin „hefur notið gífurlegra vinsælda síðan. Á sex árum hefur hún gefið út þrjár plötur, sem hafa selst eins og heitar lummur og sópað til sín fjölda verðlauna, þar á meðal þremur MTV Europe Music verðlaunum ásamt sex styttum á Teen Choice hátíðinni,“ segir í tilkynningunni. Smáskífan Down með hljómsveitinni, ásamt Gucci Mane, komst í annað sæti á topplista iTunes í fyrrasumar, aðeins fáeinum mínútum eftir útgáfu. Nýjasta plata Fifth Harmony var ein mest selda plata Bandaríkjanna á síðasta ári og rauk á toppinn hjá iTunes í fleiri en 50 löndum, þar á meðal í Grikklandi, Mexíkó, Portúgal, Argentínu og Brasilíu. Fifth Harmony hefur selt yfir hálfa milljón platna og eru sjálfsagt fjölmargir íslendingar sem þekkja risasmelli á borð við Worth It og Work From Home.Miðaverð: - Standandi: 9.990 kr. - Númeruð sæti í stúku: 14.990 kr. Tónleikarnir fara í almenna sölu fimmtudaginn 15. mars kl. 10 áTix.is/harmony en póstlistaforsalaSenu Live fer fram daginn áður, miðvikudaginn 14. mars kl. 10. Þar gefst fólki tækifæri á að tryggja sér miða degi áður en almenn sala hefst.
Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“