Útibúum Arion banka í Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ lokað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. mars 2018 10:47 Útibúi Arion banka í Hafnarfirði (sjá mynd) og Garðabæ verður lokað en annað opnað á ótilgreindum stað í alfaraleið fyrir íbúa í sveitarfélögunum tveimur. Já.is
Miklar breytingar eru framundan er snerta útibú Arion banka víðs vegar um landið. Til stendur að loka útibúum á nokkrum stöðum og sameina öðrum. Breytingarnar snerta tugi starfsmanna sem verður boðið að flytja sig til innan bankans að sögn Haraldar Guðna Einarssonar, upplýsingafulltrúa bankans. Arion banki sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem greint var frá tíðindunum á þeim forsendum að um þægilegri og aðgengilegri bankaþjónustu yrði að ræða fyrir viðskiptavini.Útibúi Arion banka í Mosfellsbæ verður lokað og það sameinað útibúinu á Bíldshöfða.Já.isStarfsemi útibúa í Garðabæ og Hafnarfirði verður lokað og að hluta til sameinuð útibúi bankans á Smáratorgi sem á að efla. „Á sama tíma mun bankinn opna nýtt útibú í alfaraleið með það að markmiði að veita íbúum og viðskiptavinum sem eiga leið um Garðabæ og Hafnarfjörð þægilegri bankaþjónustu,“ segir í tilkynningunni. Þá verður útibúi Arion banka í Mosfellsbæ lokað í maí og það sameinað útibúi bankans á Bíldshöfða í Reykjavík. Jafnframt verður útibúi bankans á Ólafsfirði lokað og það sameinað útibúinu á Siglufirði.Útibúi bankans á Ólafsfirði verður lokað.Já.is„Áfram verða alhliða hraðþjónustubankar í Mosfellsbæ, Firði í Hafnarfirði og á Ólafsfirði þar sem m.a. er hægt að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga og millifæra.“ Útibú Arion banka á Akureyri, Blönduósi, Hellu og í Vík í Mýrdal munu öll flytja í nýtt húsnæði. „Unnið er að því að velja nýtt húsnæði en við val á nýjum staðsetningum verður einkum horft til góðs aðgengis, möguleika á sveigjanlegri afgreiðslutíma og sólarhringsaðgengi að sjálfsafgreiðslulausnum,“ segir í tilkynningunni. Þá verður útibúi Arion banka við Hagatorg lokað um tíma þar sem ráðast á í miklar breytingar á útibúinu. Í tilkynningu bankans, sem lesa má í heild að neðan, segir að ekki verði komist hjá því að breytingunum fylgi ákveðið rask fyrir viðskiptavini. Tilkynningu bankans má lesa í heild hér að neðan.Breytingar á útibúaneti – þægilegri og aðgengilegri bankaþjónustaMeð tilkomu nýrra stafrænna þjónustuleiða eru að verða miklar breytingar á því hvar, hvenær og hvernig viðskiptavinir kjósa að sinna sínum fjármálum. Á næstu vikum og mánuðum mun Arion banki ráðast í breytingar á útibúaneti bankans til að aðlaga það að þessum nýju þjónustuleiðum sem allar miða að því að gera þjónustu bankans aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini.Lögð verður áhersla á sveigjanlegri þjónustutíma, betra aðgengi að hraðbönkum og öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, aukinn stuðning við stafrænar þjónustuleiðir og gott aðgengi að fjármálaráðgjöf. Þá er einnig stefnt að því að nýta betur húsnæði bankans, fækka fermetrum og auka hagkvæmni í rekstri.Sterkari þjónustukjarnarAnnars vegar verða útibú bankans í Borgartúni og á Bíldshöfða í Reykjavík og á Smáratorgi í Kópavogi efld. Öll veita þau víðtæka þjónustu, en útibúin eru svokallaðir þjónustukjarnar, líkt og útibúin í Borgarnesi, á Selfossi og á Akureyri. Í þjónustukjörnum er lögð áhersla á almenna fjármálaþjónustu og ráðgjöf sérfræðinga á öllum helstu sviðum fjármála einstaklinga og fyrirtækja.Jafnframt verður þjónusta í þjónustuveri efld. Bankinn mun áfram horfa til sveigjanlegri afgreiðslutíma og fjölbreyttra samskiptaleiða í takt við þarfir viðskiptavina en í dag er m.a. veitt þjónusta og ráðgjöf í gegnum síma, samfélagsmiðla, netspjall og tölvupóst.Aðgengilegri þjónustaHins vegar miða breytingarnar að því að einfalda mörg af smærri útibúum bankans og gera þau aðgengilegri með m.a. nýjum staðsetningum og sveigjanlegri afgreiðslutíma. Áhersla verður á almenna bankaþjónustu og stuðning við stafrænar þjónustuleiðir auk þess sem boðið verður upp á ráðgjöf hjá sérfræðingum bankans í gegnum fjarfundarbúnað. Byggt verður á góðri reynslu af nýju og endurbættu útibúi Arion banka í Kringlunni en viðskiptavinir bankans hafa tekið hinu nýja Kringluútibúi vel. Innlitum í útibúið hefur fjölgað og ánægja verið með þær nýjungar sem þar hafa verið kynntar, m.a. fjarfundi með ráðgjöfum bankans.Helstu breytingar á útibúaneti Arion banka:Sameiningar útibúa Starfsemi útibúa Arion banka í Garðabæ og Hafnarfirði verður í sumar að hluta til sameinuð þjónustukjarna bankans á Smáratorgi í Kópavogi. Á sama tíma mun bankinn opna nýtt útibú í alfaraleið með það að markmiði að veita íbúum og viðskiptavinum sem eiga leið um Garðabæ og Hafnarfjörð þægilegri bankaþjónustu. Við hönnun nýja útibúsins er horft til útibús Arion banka í Kringlunni en þar er áhersla lögð á sveigjanleika í afgreiðslutíma og gott aðgengi að stafrænum lausnum auk þess sem sérfræðingar bankans veita ráðgjöf í gegnum fjarfundarbúnað.Í maí mun útibú Arion banka í Mosfellsbæ sameinast þjónustukjarna bankans við Bíldshöfða í Reykjavík. Jafnframt mun útibú bankans á Ólafsfirði sameinast útibúinu á Siglufirði.Áfram verða alhliða hraðþjónustubankar í Mosfellsbæ, Firði í Hafnarfirði og á Ólafsfirði þar sem m.a. er hægt að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga og millifæra.Rótgróin útibú fá ný heimili Útibú Arion banka á Akureyri, Blönduósi, Hellu og í Vík í Mýrdal munu öll flytja í nýtt húsnæði. Unnið er að því að velja nýtt húsnæði en við val á nýjum staðsetningum verður einkum horft til góðs aðgengis, möguleika á sveigjanlegri afgreiðslutíma og sólarhringsaðgengi að sjálfsafgreiðslulausnum.Endurbætur á VesturbæjarútibúiÚtibú Arion banka við Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur mun taka gagngerum breytingum. Loka verður útibúinu tímabundið vegna framkvæmdanna en á þeim tíma verða hraðbankar að sjálfsögðu aðgengilegir.Ekki verður hjá því komið að þessum breytingunum fylgi ákveðið rask fyrir viðskiptavini en bankinn mun kappkosta að lágmarka það eins og frekast er unnt.
Neytendur Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira