Sálin þrjátíu ára og stóru egóin rífast annan hvern dag Stefán Árni Pálsson skrifar 8. mars 2018 11:30 Sálin var stofnuð þann 10.mars árið 1988.
Sálin hans Jóns míns var stofnuð þann 10. mars 1988 og fagnar því um helgina 30 ára afmæli. Ísland í dag settist niður með Stefáni Hilmarssyni og Guðmundi Jónssyni og voru bestu augnablikin rifjuð upp. Guðmundur segir að Rafn Jónsson og Jón Ólafsson hafi upphaflega átt hugmyndina af stofnun bandsins. „Það var einhver stund milli stríða, menn blankir og það þurfti að stofna hljómsveit,“ segir Guðmundur. Upphaflega átti sveitin að spila soul músík og átti Sálin upphaflega að vera þriggja mánaða verkefni. Árið 1988 var stórt ár hjá Stefáni Hilmarssyni en nokkrum vikum eftir að sveitin var stofnuð tók hann þátt í Eurovision með Sverri Stormsker þar sem þeir fluttu lagið fræga Sókrates. „Fyrsta giggið hjá okkur var bara strax á eftir undankeppninni í Eurovision. Það var mikið að gerast hjá mér á þessum tíma.“ Guðmundur segir að rauði þráðurinn í sveitinni hafi verið skemmtunin að koma fram á böllum. „Við höfum verið það heppnir að eiga mjög dyggan hóp aðdáenda sem mæta vel á tónleika,“ segir Stefán. Sálin heldur stórtónleika í Valsheimilinu á laugardagskvöldið og fagnar bandið afmælinu með pompi og prakt.En fá þeir aldrei leið á hvor öðrum? „Jú jú, svona annan hvern dag. Það eru stór egó innan hljómsveitarinnar og það eru alltaf núningar. Oftar en ekki þarf svona núningar til að halda hlutunum gangandi.“ Hér að neðan má sjá viðtalið við þá drengi.
Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“